Kröfu um ógildi kosninga í Rangárþingi ytra hafnað Bjarki Ármannsson skrifar 15. júlí 2014 15:30 Ágúst er fráfarandi rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Vísir/GVA
Sýslumanninum á Hvolsvelli barst í síðasta mánuði kæra í kjölfar sveitarstjórnarkosninga í Rangárþingi ytra sem snýr að lögheimilisskráningu Ágústs Sigurðssonar, oddvita Sjálfstæðismanna og nýkjörins sveitarstjóra. Farið var fram á ógildingu úrslita kosninganna í ljósi þess að Ágúst er með skráð lögheimili í Kirkjubæ í Rangárþingi ytra en er sagður hafa fasta búsetu á Hvolsvelli í Rangárþingi eystra. Kærunefnd hafnaði kröfunni.Aðalheimilið á Kirkjubæ „Þetta er nú í rauninni á misskilningi byggt,“ segir Ágúst, sem er fráfarandi rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. „Við erum með tvöfalda búsetu. Við eigum bú á Kirkjubæ, sem við rekum, en eigum einnig annað hús á Hvolsvelli.“ Hann segir aðalheimili fjölskyldunnar vera á Kirkjubæ, þar sem hann hefur alla ævi átt lögheimili. Hann segist hafa útskýrt þetta á fundum með sveitarstjórn Rangárþings ytra en á fundi þann 9. júlí færði Á-listinn, sem er í minnihluta, eftirfarandi til bókar: „Ljóst er að föst búseta sveitarstjórnarfulltrúa, sem kæran fjallar um, er utan sveitarfélagsins og vilja fulltrúar Á-lista benda á 2. gr. siðareglna kjörinna fulltrúa og annarra stjórnenda Rangárþings ytra varðandi þetta mál.“ Ágúst segir kæruna og viðbrögð minnihlutans í kjölfar kosninganna hafa komið sér á óvart. „Ég átti ekki von á þessu,“ segir hann. „Það er einhvern veginn svo fast í hausnum á mér að okkar aðalheimili er í Kirkjubæ, eins og alltaf hefur verið. Ég áttaði mig ekki á því að menn væru að velta þessu fyrir sér, en þetta er bara hluti af lýðræðinu. Menn eiga þennan kærurétt.Telur farsælt samstarf framundan Ágúst segist sjálfur aldrei hafa fengið kæruna í hendur. Hann telur ekki að hún hafi verið lögð fram af fulltrúum minnihlutans í sveitarstjórn, en kærandi er hvergi nafngreindur. „Ég held að þetta hafi komið þeim jafnmikið á óvart og mér,“ segir hann. „Ég held að það verði mjög farsælt samstarf hjá okkur í sveitarstjórn.“
Tengdar fréttir Bílastyrkur til sveitarstjóra fimmfaldast Minnihlutinn í Rangárþingi ytra gagnrýnir breytingu á ráðningarsamningi við Ágúst Sigurðsson sveitarstjóra sem heimili honum að búa utan þingsins. 10. júlí 2014 11:53 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira
Bílastyrkur til sveitarstjóra fimmfaldast Minnihlutinn í Rangárþingi ytra gagnrýnir breytingu á ráðningarsamningi við Ágúst Sigurðsson sveitarstjóra sem heimili honum að búa utan þingsins. 10. júlí 2014 11:53