Innlent

Ók próflaus undir áhrifum kókaíns og amfetamíns á nagladekkjum

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/róbert
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði um helgina ökumann sem reyndist hafa neytt kókaíns og amfetamíns, að því er sýnatökur á lögreglustöð staðfestu.

Þá ók hann sviptur ökuréttindum og bifreiðin sem hann ók var á nagladekkjum.

Þá voru sex ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu um helgina. Sá sem hraðast ók mældist á 133 km. hraða þar sem hámarkshraði var 90. km. á klukkustund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×