Kveikt í körfuboltavelli í Grindavík Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 12. júní 2014 19:20 Körfuboltavöllurinn við Hópsskóla í Grindavík. mynd/siggeir/grindavik.is
Unnar voru skemmdir á körfuboltavellinum við Hópsskóla í Grindavík um síðastliðna helgi. Í skjóli nætur höfðu skemmdarvargar unnið töluverðar skemmdir á undirlagi körfuboltavallarins, en þar hafði verið kveikt í vellinum og í hlíf á einni körfu. Siggeir F. Ævarsson, upplýsingafulltrúi Grindavíkurbæjar, segir þessar skemmdir hafa töluverðan kostnað í för með sér. „Þetta er ekkert spaug. Málið er að það þarf að rífa upp póstana, alveg út að endalínu til að brjóta ekki festingarnar. Þetta er bara bölvað vesen,“ segir Siggeir. Búið var að brenna fjórar plötur nánast upp til agna á áberandi stað á vellinum og gat var brennt á hlíf utan um eina körfu vallarins. Siggeir segist gruna hver það kunni að vera sem standi baki verknaðnum, en segir málið nú á borði lögreglu.Gatið á hlífinni.mynd/siggeir/grindavik.isSveinbjörn Jónsson, umsjónarmaður fasteigna í Hópsskóla, kom að skemmdarverkunum þegar hann mætti til vinnu síðastliðinn mánudag. Hann segir ekki ljóst hvers kyns bruninn sé, en þó sé ljóst að mikinn hita þurfi til þess að valda slíkum skemmdum. Hann telur þó aðra aðila hafa staðið baki þess að hafa rifið upp plöturnar, fjórar gular plötur af endalínu vallarins. „Það er í raun hægt að kalla völlinn slysagildru eins og staðan er núna, og þá aðallega í sambandi við skemmdirnar á körfunni,“ segir Sveinbjörn. Hann segir körfuboltavöllinn mikið notaðan dags daglega, þá einna helst af börnum og unglingum. Báðir segja þeir skemmdarverk sem þessi ekki algeng í Grindavík og segja fólk almennt ganga vel um almenningseignir. Þarna hafi þó verið um einbeittan brotavilja að ræða og segja það algjöra synd að farið sé um sameign bæjarbúa með þessum hætti.Plöturnar sem brunnu og eru gjörónýtar.mynd/siggeir/grindavik.isGatið við endalínuna.mynd/siggeir/grindavik.is
Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent Fleiri fréttir Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Kvöddu Davíð hinsta sinni Sjá meira