Djammarar ættu að hafa varann á Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. júní 2014 19:57 Geir Jón Þórisson er reynslunni ríkari í þessum efnum.
Föstudagskvöld eru alla jafna viðburðarík hjá lögreglunni í miðborg Reykjavíkur þegar fólk hvaðanæva að streymir á knæpur borgarinnar og lyftir sér upp eftir langa vinnuviku. Óminnishegrinn á það þó til að kalla fram það versta í fólki og pústrar því algengir. Geir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, hefur löngum haldið því fram að sérstaklega varasamt sé að fara út á lífið á fullu tungli. Reynslan hafi sýnt honum að fólk sé líklegra til að snöggreiðast og grípa til handalögmála þegar þess nýtur við. Skemmtanaþyrstir ættu því að hafa varann á því fullt tungl mun lýsa upp miðborgina í nótt. Geir Jón telur þessa auknu ofbeldishneigð eiga sér eðlilegar skýringar. „Maðurinn er um 80 prósent vatn og hvernig virkar tunglið á sjóinn og vatn? Jú, það togar í það og því ætti fullt tungl óneitanlega að hafa áhrif á vatnið í líkömum nátthrafnanna,“ segir Geir Jón í samtali við Vísi. Hann segist hafa séð sérstaklega mikinn mun á milli ára þegar fullt tungl bar upp á Menningarnótt eitt árið, einhver púki hafi þá hlaupið í mannskapinn. Þessi kenning Geirs Jóns er þó umdeild og segir hann að margir séu ekki alls kostar sammála honum. Fleiri trúi því hins vegar að föstudeginum þrettánda fylgi einhver ólukka en hann er einmitt í dag. Geir Jón hlær að slíkum fabúleringum. „Þrettán er happatalan mín. Hún var fyrsta talan mín þegar ég byrjaði í löggunni,“ segir hann kíminn. Hann vill brýna fyrir öllum þeim ætla að skemmta sér kvöld að hafa varann á, viðskotaillir verði eflaust á hverju strái í miðborginni. „Þetta er nú bara búið að vera svona í gegnum tíðina þannig að vonandi passa allir sérstaklega upp á sig í kvöld.“
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira