„Deilur skapað vonda ímynd fyrir Kópavog“ Jón Júlíus Karlsson skrifar 7. júní 2014 20:00
Sjálfstæðisflokkurinn og Björt framtíð mynduðu formlega nýjan meirihluta í Kópavogi í dag. Ármann Kr. Ólafsson verður áfram bæjarstjóri í Kópavogi. Bæjarstjórinn segir verði breyttur bragur á nýrri bæjarstjórn og átakatímabil sé á enda.Ármann Kr. Ólafsson, sem áfram verður bæjarstjóri, kynnti helstu stefnumál meirihlutans fyrir kjörtímabilið en þau eru meðal annars að koma skólum Kópavogsbæjar í fremstu röð og hafa bókhald bæjarins opið. Málefnasamningur meirihlutans verður lagður fram á fyrsta bæjarstjórnarfundi. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fimm bæjarfulltrúa kjörna í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Talið var líklegast að flokkurinn færi í meirihlutasamstarf með Framsóknarflokknum. Hvers vegna Björt framtíð? „Það er vegna þess að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins voru sammála um að það væri gott að vera með aukin meirihluta og það var vilji fólksins að prófa þetta fyrst. Það var mikill samhljómur með stefnuskránum og því stigum við þetta skref,“ segir Ármann Kr.Vilja skapa meiri róTheódóra S. Þorsteinsdóttir lýst vel á samstarf með Sjálfstæðisflokknum og Ármanni sem bæjarstjóra. „Mér lýst ágætlega á það. Ármann fékk ágæta traustyfirlýsingu fannst okkur í þessum kosningum. Það verður gaman að vinna með honum næstu fjögur árin.“ Talverð átök voru í bæjarstjórn Kópavogs á síðasta kjörtímabili. Theódóra segir það hafa skaðað ímynd bæjarfélagsins. „Það er markmið af okkar hálfu að það skapist meiri ró. Auðvitað má fólk takast á málefnalega en þessar deilur sem hafa verið hafa skapað vonda ímynd fyrir Kópavog. Við erum bjartsýn á að það verði breyting þar á,“ segir Theodóra. Ármann tekur í svipaðan streng. „Ég hef mikla trú á þeim bæjarfulltrúum sem eru að koma inn. Það eru níu nýir bæjarfulltrúar sem er auðvitað mjög mikið. Á samtölum við þetta fólk þá er mjög bjartsýnn með framhaldið og að það verði breyttur bragur á bæjarstjórninni í Kópavogi.“
Tengdar fréttir Bókhald Kópavogs verður opnað og íbúalýðræði virkjað Sjálfstæðisflokkur og Björt framtíð hafa myndað nýjan meirihluta í Kópavogi. Ármann Kr. Ólafsson verður áfram bæjarstjóri. Bókhald bæjarins verður opnað og íbúalýðræði verður virkjað með kosningum um einstök mál í hverfum bæjarins. 7. júní 2014 13:25 Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira
Bókhald Kópavogs verður opnað og íbúalýðræði virkjað Sjálfstæðisflokkur og Björt framtíð hafa myndað nýjan meirihluta í Kópavogi. Ármann Kr. Ólafsson verður áfram bæjarstjóri. Bókhald bæjarins verður opnað og íbúalýðræði verður virkjað með kosningum um einstök mál í hverfum bæjarins. 7. júní 2014 13:25