Þætti eðlilegt að hleypa Hassan heim fyrst Bjarki Ármannsson skrifar 25. maí 2014 12:01 Margrét Lára og Hassan giftu sig í mars. Mynd/Aðsend „
Ég er alls ekki sátt,“ segir Margrét Lára Estherardóttir, eiginkona hins sýrlenska Hassan al Haj, um þá ákvörðun stjórnvalda að veita fjölda sýrlenska flóttamanna hæli hér á landi um leið og maður hennar bíður eftir dvalarleyfi. Margrét og Hassan giftu sig í mars en honum var vísað úr landi fyrr í mánuðinum. Hann bíður nú í óvissu í Svíþjóð en þau fengu svar frá Útlendingastofnun nú á miðvikudaginn um að úrskurðurinn um að vísa honum úr landi stæði. Það þarf því að kæra úrskurðinn til þess að honum verði breytt. „Lögmaðurinn okkar kærði úrskurðinn strax,“ segir Margrét. „Við vildum fyrst ekki gera það því við búumst við því að það taki lengri tíma fyrir Hassan að fá dvalarleyfi ef úrskurðurinn er kærður.“ Hún segir þau hjónin hafa beðið upplýsinga frá Útlendingastofnun nánast frá því að hann var sendur úr landi. Einnig vonuðust þau eftir því að Hassan fengi að snúa aftur þegar ljóst var að þau Abdennour Khebani frá Alsír og Izekor Osazee frá Nígeríu yrðu ekki send úr landi. Í sömu vikunni og Margrét og Hassan fengu svar um að úrskurðinum um að vísa Hassan úr landi yrði ekki breytt samþykkti ríkisstjórnin tillögu innanríkisráðherra, velferðarráðherra og utanríkisráðherra að taka á móti flóttafjölskyldum frá Sýrlandi. Um tíu til fimmtán manns munu koma til landsins. „Ég er rosalega ósátt,“ segir Margrét um þessa forgangsröðun. „Mér þætti eðlilegt að hleypa honum heim fyrst. Honum líður illa í Svíþjóð, hann þorir ekki að gefa sig fram við yfirvöld því þá á hann í hættu að vera sendur til baka.“ Margrét segir að sem betur fer eigi Hassan í hús að venda hjá móður sinni og systur í Svíþjóð, þar sem hann sefur á gólfinu. Hún segist tala við hann á hverjum degi og að hann vilji ólmur geta snúið aftur til Íslands. Þau hjónin vita ekki hvenær það verður. „Það tekur einhvern tíma að láta þetta fara fyrir dóm,“ segir Margrét. „Við vitum ekki neitt.“
Tengdar fréttir Tekið á móti 10 - 15 flóttamönnum frá Sýrlandi Innanríkisráðherra segir það gleðiefni að ríkisstjórnin hafi samþykkt að taka á móti flóttafjölskyldum frá Sýrlandi þar sem sérstök áhersla verður lögð á að taka á móti börnum sem hafa slasast eða glíma við önnur veikindi og fjölskyldum þeirra. 24. maí 2014 12:21 „Það eina sem við viljum er að fá að lifa saman hér á Íslandi“ Hassan Mahdi, sem vísað var frá landi, er nú í Svíþjóð og bíður þess að komast aftur til landsins og fá að vera með konu sinni. 14. maí 2014 13:55 Fær engin svör frá íslenskum yfirvöldum "Mig langar bara að fá að vera á Íslandi og byggja upp líf og framtíð með konunni minni,“ segir sýrlenskur hælisleitandi sem giftur er íslenskri konu, en var engu að síður vísað úr landi fyrr í þessum mánuði. 19. maí 2014 20:00 Miklar breytingar á málefnum hælisleitenda í haust Meðalmálsmeðferðartími hælisleitenda hér á landi hefur verið um tvö ár en styttist í nokkra mánuði, með breyttum útlendingalögum. Innanríkisráðherra segir breytingarnar verða að veruleika í haust. 20. maí 2014 20:00 Mest lesið Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Innlent Fleiri fréttir Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Ákvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Ekið á skólarútu Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Komu biluðum báti til bjargar Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Niðurrifið á göngubrúnni hafið Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Þorsteinn tekur við formennsku af Fanneyju Birnu Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Bein útsending: Ársfundur Samorku Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Kviknaði í kaffibrennsluofni Vaxtaákvörðun framundan og snjóflóðahætta fyrir vestan Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Árekstur við Suðurlandsbraut „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Fyrri umræðu um þjóðaratkvæði lokið Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Sjá meira
Tekið á móti 10 - 15 flóttamönnum frá Sýrlandi Innanríkisráðherra segir það gleðiefni að ríkisstjórnin hafi samþykkt að taka á móti flóttafjölskyldum frá Sýrlandi þar sem sérstök áhersla verður lögð á að taka á móti börnum sem hafa slasast eða glíma við önnur veikindi og fjölskyldum þeirra. 24. maí 2014 12:21
„Það eina sem við viljum er að fá að lifa saman hér á Íslandi“ Hassan Mahdi, sem vísað var frá landi, er nú í Svíþjóð og bíður þess að komast aftur til landsins og fá að vera með konu sinni. 14. maí 2014 13:55
Fær engin svör frá íslenskum yfirvöldum "Mig langar bara að fá að vera á Íslandi og byggja upp líf og framtíð með konunni minni,“ segir sýrlenskur hælisleitandi sem giftur er íslenskri konu, en var engu að síður vísað úr landi fyrr í þessum mánuði. 19. maí 2014 20:00
Miklar breytingar á málefnum hælisleitenda í haust Meðalmálsmeðferðartími hælisleitenda hér á landi hefur verið um tvö ár en styttist í nokkra mánuði, með breyttum útlendingalögum. Innanríkisráðherra segir breytingarnar verða að veruleika í haust. 20. maí 2014 20:00