Engin lög verið brotin enn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. mars 2014 15:19 Vísir/Heiða
Lögreglunni í Hafnarfirði var tilkynnt um að íslensk stúlka hefði verið numin á brott af föður sínum í morgun fyrir utan grunnskóla sinn í morgun. Stúlkan var á leið til skóla með móður sinni. Að sögn lögreglu hafa engin lög verið brotin enn sem komið enda foreldrarnir enn giftir. Málinu var af þeim sökum vísað til barnaverndaryfirvalda. Faðir stúlkunnar, sem er af erlendu bergi brotinn, hitti á mæðgurnar fyrir utan Álftanesskóla í morgun. Hafði hann stúlkuna á brott með sér í óþökk móðurinnar eins og greint var frá á Vísi fyrr í dag. Fjölskylda stúlkunnar er í uppnámi og hefur verið í sambandi við lögregluna í Hafnarfirði. Lögreglan vísaði hins vegar málinu til barnaverndaryfirvalda undir þeim formerkjum að engin lög hefðu verið brotin. Móðirin og faðirinn eru enn gift og stúlkan því einnig undir forræði föður síns. Faðririnn og móðirin hafa búið á Íslandi og í heimalandi föðursins á víxl undanfarin áratug. Nýlega flutti móðirin ásamt stúlkunni til Íslands. Þau eiga einnig dreng sem er á átjánda ári. Mæðgurnar hafa verið búsettar hjá ömmu stúlkunnar undanfarinn mánuð. Engin úr fjölskyldu stúlkunnar hefur viljað tjá sig um málið opinberlega enn sem komið er. Vegabréf stúlkunnar er hjá móður hennar sem gerir föðurnum erfitt fyrir að koma stúlkunni úr landi. Engu að síður hefur myndum af stúlkunni verið dreift á meðal starfsmanna vegabréfaeftirlitsins á Keflavíkurflugvelli.Uppfært klukkan 22:30 Faðirinn hefur skilað stúlkunni aftur til móðurinnar sjálfviljugur samkvæmt heimildum DV. Mæðgurnar halda til á öruggum stað.
Mest lesið Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira