Lestu þetta ef þú leitar að sannri ást Ellý Ármanns skrifar 30. janúar 2014 11:30 Halla Himintungl. mynd/Sigríður Ella Frímannsdóttir
Í dag er nýtt tungl í vatnsberamerkinu sem er táknrænt fyrir óskilyrta ást þess vegna er tilvalið fyrir þá sem leitast við að finna ástina að brugga ástargaldur fyrir dagslok. Við leituðum til Höllu Himintungls stjörnufræðings sem gaf okkur uppskrift að ástargaldri sem virkar að hennar sögn. Uppskrift að ástargaldri1 meter af bleikum borða 1 saltstaukur 1 piparstaukurAðferð: Byrja þarf á að ákveða hvor staukurinn sé táknrænn annars vegar fyrir konu og hins vegar fyrir mann, annars standa báðir staukarnir fyrir sama kyn ef viðkomandi er samkynhneigður. Nú er komið að framkvæmd galdursins, fara verður með eftirfarandi galdraþulu um leið og sitt hvor endi bleika borðans er bundinn utan um staukana. Þulan hljóðar svona: „Með bleikum borða bind ég þig, svo sönn ást megi finna mig, á þann galdrahátt að engum geri hvorki harm né neikvæðan mátt." Næsta morgun leysir þú bleika borðann utan af staukunum, færir þá eilítið nær hvor öðrum og ferð með galdraþuluna um leið og þú bindur borðann aftur utan um staukana. Þetta endurtekur þú daglega í næstu sex daga. Á sjöunda degi (nákvæmlega 1 viku frá nýju tungli) eiga staukarnir að snertast. Það er að segja nú bindur þú þá saman - þulunni má ei gleyma en hana þarf að fara með um leið og þú sameinar staukana í eina innbundna ástartöfraheild. Síðan leyfir þú galdrinum að vera ósnertum þar til nótt næsta fulla tungls brestur á (sem er einni viku síðar) þá leysir þú bleika borðann og þá fara töfrarnir á stjá. Hugsanlega fer einhver yndisleg manneskja að birtast í lífi þínu áður en langt um líður. Í lengsta falli gæti liðið eitt ár þar til galdurinn skilar sér í hjartahlýrri ást og hamingju. Dragðu tarotspil á Lífinu hér.
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira