Bíó og sjónvarp

Kominn tími á DiCaprio?

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
The Wolf of Wall Street skilaði DiCaprio sinni fjórðu Óskarstilnefningu.
The Wolf of Wall Street skilaði DiCaprio sinni fjórðu Óskarstilnefningu.
Tilnefningar til Óskarsverðlaunanna voru kynntar í gær en afhending verðlaunanna fer fram í Los Angeles þann 2. mars. Kvikmynd leikstjórans Martins Scorsese, The Wolf of Wall Street, er tilnefnd í fimm flokkum.

Myndin byggir á samnefndri ævisögu gróðabrallarans Jordans Belford, fyrrverandi verðbréfamiðlara á Wall Street sem var dæmdur í fangelsi árið 1998 fyrir fjársvik og peningaþvott. Saga hans er ótrúleg og í meðförum Scorsese er hún jafnvel ótrúlegri.

Scorsese þakkar fyrir sig á Óskarsverðlaunaafhendingunni 2007.vísir/getty
Scorsese er tilnefndur í flokki bestu leikstjóra í áttunda sinn. Hann hefur hlotið verðlaunin einu sinni, fyrir kvikmyndina The Departed frá árinu 2006.

Hann er talinn einn áhrifamesti bandaríski kvikmyndaleikstjóri allra tíma og eftir hann liggur ógrynni klassískra kvikmynda. Af þeim má nefna Taxi Driver, GoodFellas, Raging Bull og Gangs of New York.

The Wolf of Wall Street er fimmta mynd leikstjórans með leikaranum Leonardo DiCaprio, en hann er einnig tilnefndur í flokki bestu leikara í aðalhlutverki. Er það í fjórða sinn sem hann er tilnefndur til Óskarsverðlauna en hann hefur hins vegar aldrei unnið þau.

Þá er Jonah Hill tilnefndur fyrir besta leik í aukahlutverki en hann leikur hinn skrautlega Danny Porush, félaga og samstarfsmann Jordans Belfords. Þetta er önnur tilnefning Hills, en hann var tilnefndur í sama flokki fyrir myndina Moneyball sem kom út árið 2011.

Jonah Hill sýnir mikil og góð tilþrif í hlutverki sínu.


The Wolf of Wall Street hefur fengið prýðisgóðar viðtökur frá almenningi jafnt sem gagnrýnendum, þó sumir hafi bent á að þeim finnist myndin hreinlega upphefja þá glæpastarfsemi sem hún fjallar um. Þá hlýtur hún einnig þann vafasama heiður að vera nýr methafi í blótsyrðum í kvikmynd.

Myndin hlaut tvenn verðlaun á nýafstaðinni Golden Globe-verðlaunahátíð. Hún sigraði í flokki bestu gamanmynda og söngleikja, og DiCaprio var valinn besti aðalleikari í sama flokki. Þá var myndin einnig tilnefnd til fjögurra BAFTA-verðlauna.

Erfitt er að spá fyrir um gengi hennar á Óskarnum þó löngu sé kominn tími á DiCaprio að mati margra.







Tilnefningar:


Besta kvikmynd

Besti leikstjóri - Martin Scorsese

Besta handrit byggt á áður útgefnu efni - Terence Winter

Besti leikari í aðalhlutverki - Leonardo DiCaprio

Besti leikari í aukahlutverki - Jonah Hill

Einkunn á IMDB: 8.7

Einkunn á Rotten Tomatoes: 75%

Einkunn á Metacritic: 75






Fleiri fréttir

Sjá meira


×