Leoncie er flutt aftur til Íslands Gunnar Leó Pálsson skrifar 8. febrúar 2014 12:45 Tónlistarkonan Leoncie er flutt til landsins og kemur fram á tónleikum í kvöld. mynd/einkasafn „
Ég er flutt aftur til Íslands og er nú á fullu að koma mér fyrir hér í Keflavík,“ segir tónlistarkonan Leoncie sem kemur fram á tónleikum á Gauknum í kvöld. Hún segist jafnframt kunna vel við sig í Keflavík og að þar sé fólkið gott. Leoncie hefur undanfarin ár búið í Englandi í bæ skammt frá London. „Ég kann ekki vel við London, það er allt svo skítugt þar og vond lykt.“ Hún ætlar að stimpla sig inn í íslenskt þjóðlíf á ný með því að koma fram á tónleikum í kvöld. „Þetta eru fyrstu tónleikarnir mínir á Íslandi í tvö ár og ég hlakka mikið til,“ bætir Leoncie við. Hún kom talsvert fram á meðan hún bjó ytra en kom þá helst fram á fyrirtækjafagnaði og minna á opinberum klúbbum. Þá hefur hún verið að semja kvikmyndatónlist fyrir Bollywood-myndir. Leoncie er þó ekki eingöngu í tónlistarbransanum. „Ég vann meðal annars við að selja fasteignir í Englandi,“ segir Leoncie. Hún segist jafnframt vera góður kokkur og að hún sé farin að hugsa til þess að opna alvöru indverskan veitingastað á Íslandi. Tónleikar Leoncie fara fram á Gauknum í kvöld og verður húsið opnað klukkan 21.00 og kostar þúsund krónur inn. Þá mun hún einnig árita hljómplöturnar sínar á staðnum.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun „Við erum bara tvö eftir“ Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Sjá meira