Elti fórnarlambið upp á bráðamóttöku Brjánn Jónasson skrifar 8. janúar 2014 13:28 Átök sem enduðu með hnífstungu urðu á skemmtistaðnum Monte Carlo um kvöldmatarleyti á laugardag. Mynd/Daníel
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem grunaður er um stórfellda líkamsárás á skemmtistaðnum Monte Carlo á laugardaginn. Maðurinn elti fórnarlambið á bráðamóttöku Landspítalans. Meintur gerandi átti í útistöðum við annan gest Monte Carlo. Sá hafði sakað gerandann um að hafa stolið bíl. Vitni segja að slagsmál þeirra hafi endað með því að fórnarlambið var stungið með hnífi í síðuna. Maðurinn hlaut lífshættulega áverka í árásinni. Hnífslagið náði að milta hans og blæddi inn á kviðarhólf hans vegna stungunnar. Meintur gerandi kom á bráðamóttöku Landspítalans eftir að fórnarlamb hans var flutt þangað. Samkvæmt því sem rakið er í gæsluvarðhaldsúrskurði héraðsdóms mun gerandinn hafa rætt við þrjá menn sem virðast tengjast fórnarlambinu. Þeim orðaskiptum mun hafa lokið á því að meintur gerandi lét einn þeirra hafa hníf og manaði hann að stinga sig. Þegar ekki varð af því fór maðurinn, en var handtekinn af lögreglu skömmu síðar. Hnífurinn fannst í ruslafötu við bráðamóttökuna. Lögregla krafðist gæsluvarðhalds til 10. janúar á grundvelli rannsóknarhagsmuna, og urðu dómstólar við því. Lögreglan telur líkur á að meintur gerandi geti haft áhrif á vitni og spillt rannsókninni með öðrum hætti gangi hann laus.
Mest lesið Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Erlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Hegðun Trumps vonbrigði Innlent Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Fleiri fréttir Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Sjá meira