Skólastjórinn í Borgaskóla starfar nú í Fellaskóla Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. júní 2014 15:30 Inga Þórunn við bláberjatínslu nærri Húsavík. „
Þetta er gaman að heyra. Það er verst að skólinn hafi verið settur í þá stöðu að vera ekki lengur sjálfstæður skóli,“ segir Inga Þórunn Halldórsdóttir, fyrrverandi skólastjóri í Borgarskóla. Skólinn kom best út allra skóla í Reykjavík í niðurstöðum PISA-rannsóknarinnar sem fimmtán ára nemendur þreyttu árið 2012. Borgaskóli og Engjaskóli í Grafarvogi voru sameinaðir í nýjan skóla, Vættaskóla, um áramótin 2012 til 2013 í hagræðingarskyni. Nemendur úr Engjaskóla skoruðu aðeins yfir meðallagi í PISA-prófinu en sem áður sagði stóðu nemendur Borgaskóla sig best. „Ég var fyrst og fremst með alveg rosalega gott og samhæft starfslið. Það skipti mestu máli,“ segir Inga Þórunn spurð um góðan árangur nemendanna. Hún viðurkennir að skólinn hafi verið rekinn af miklum metnaði. „Það skiptir máli að hafa metnað til að allt gangi vel. Að sætta sig aldrei við minna en það sem er gott.“ Samstarf við nemendur og foreldra hafi verið sérstaklega gott en mestu máli hafi skipt það úrval kennara sem mynduðu einstaklega gott lið. Þá hafi skólinn farið í gegnum þróunarverkefni þar sem mikil áhersla hafi verið lögð á kennslu yngri barna, sérstaklega í þeim grunngreinum á borð við lestur, stærðfræði og náttúrufræði. Sýn þeirra hafi verið skýr og markvisst unnið að markmiðum.Fellaskóli.Vísir/StefánKennir nú í Fellaskóla Inga Þórunn var í sumarfríi í Svíþjóð þegar blaðamaður náði af henni tali. Hún lét af störfum við sameiningu skólanna tveggja um áramótin 2012 til 2013. Í dag er hún í hálfu starfi sem verkefnastjóri í sérkennslu við Fellaskóla en er annars komin á eftirlaun. Fellaskóli er einmitt sá skóli sem kom verst út úr PISA-könnuninni árið 2012. „Þetta eru svo gjörólík umhverfi og aðstæður,“ segir Inga Þórunn um Borgahverfi og Fellahverfi. „Þetta er ekki sambærilegt og ósanngjarnt gagnvart Fellaskóla að bera saman.“ Hún minnir á að allt öðruvísi þurfi að haga kennslu í Fellaskóla enda hátt í sjötíu prósent nemenda af erlendu bergi brotinn. Íslenska sé erfitt mál að læra. „Við Íslendingar höfum svo litla reynslu af því að vinna með börnum af erlendum uppruna. Við höfum látið þetta í hendurnar á skólastjórnendum sem standa frammi fyrir endalausum vandamálum,“ segir Inga Þórunn. Hún óskar þess að neikvæðri umfjöllun um Fellaskóla linni og fjölmiðlar kynni sér frekar það góða starf sem eigi sér þar stað. „Það er erfitt að vinna gott skólastarf þegar stöðugt er verið að hamra á því að þú sért ekki að standa þig vel.“
Tengdar fréttir Tæpur helmingur nemenda Fellaskóla nær ekki grunnstigi Samkvæmt samantekt á stærðfræðihæfni nemenda í Reykjavík náðu um 45 prósent nemenda Fellaskóla ekki fyrsta þrepi af sex. 27. júní 2014 11:57 Ekki hægt að horfa framhjá innflytjendabreytunni 67 prósent nemenda í Fellaskóla eru af erlendu bergi brotin. Nemendur við skólann koma illa út úr niðurstöðum PISA-rannsóknarinnar. Átak í móðurmálskennslu hjá yngstu nemendum vekur ástæðu til bjartsýni. 27. júní 2014 13:16 Borgaskóli kemur best út úr PISA: "Við erum æðisleg“ "Við hvetjum nemendur til að taka ábyrgð á eigin námi; setja sér markmið og vinna í að styrkja sig," segir Jóhanna S. Vilbergsdóttir skólastjóri. 27. júní 2014 12:44 Borgaskóli kom best út úr PISA Hæfni nemenda var metinn eftir þremur þáttum; stærðfræðilæsi, lesskilningi og náttúrufræðilæsi. 27. júní 2014 12:30 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira
Tæpur helmingur nemenda Fellaskóla nær ekki grunnstigi Samkvæmt samantekt á stærðfræðihæfni nemenda í Reykjavík náðu um 45 prósent nemenda Fellaskóla ekki fyrsta þrepi af sex. 27. júní 2014 11:57
Ekki hægt að horfa framhjá innflytjendabreytunni 67 prósent nemenda í Fellaskóla eru af erlendu bergi brotin. Nemendur við skólann koma illa út úr niðurstöðum PISA-rannsóknarinnar. Átak í móðurmálskennslu hjá yngstu nemendum vekur ástæðu til bjartsýni. 27. júní 2014 13:16
Borgaskóli kemur best út úr PISA: "Við erum æðisleg“ "Við hvetjum nemendur til að taka ábyrgð á eigin námi; setja sér markmið og vinna í að styrkja sig," segir Jóhanna S. Vilbergsdóttir skólastjóri. 27. júní 2014 12:44
Borgaskóli kom best út úr PISA Hæfni nemenda var metinn eftir þremur þáttum; stærðfræðilæsi, lesskilningi og náttúrufræðilæsi. 27. júní 2014 12:30