Færri í skóla og fleiri að vinna Erla Björg Gunnarsdóttir og Jóhanna Einarsdóttir skrifar 19. ágúst 2014 12:00 Rektor skólans telur bætt atvinnuástand og hækkun innritunargjalda útskýra fækkun nemenda.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, telur að bætt atvinnuástand og inntökupróf í lagadeild og fleiri greinar eigi stóran þátt í fækkun nemenda við háskólann en eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær hefur nemendum fækkað nokkuð. Kristín telur að þegar öll kurl verða komin til grafar nemi fækkunin um 500 nemendum. Mesta fækkun nemenda er í hug- og félagsvísindagreinum. Kristín segir fjölgunina hafa verið mesta í þeim greinum eftir hrun en nú sé nemendum að fækka aftur í þessum greinum. Á sama tíma fjölgi nemendum í tækni- og raungreinum. Þá segir hún að nemendum sem taka eitt eða tvö námskeið fari fækkandi frá fyrra skólaári. „Við sjáum að fleiri nemendur taka sér leyfi eftir stúdentspróf. Vinna á haustin og fara utan á vormisseri.“Kristín ingólfsdóttirKristín segir aðra skýringu á fækkun nemenda geta verið hækkun á innritunargjöldum, en þau hækkuðu úr 60 þúsund krónum í 75 þúsund á ár. Einnig verður fækkun nemenda í framhaldsskólum landsins, samkvæmt svörum frá menntamálaráðuneytinu. Hluti skýringarinnar er minni árgangur nýnema en einnig telja stjórnendur nokkurra framhaldsskóla sem Fréttablaðið ræddi við að minnkandi atvinnuleysi sé skýringin. Berglind Halla Jónsdóttir, áfangastjóri Fjölbrautaskólans í Breiðholti, segir til að mynda ekki eins marga fullorðna skrá sig í nám í dagskóla. Mikil fjölgun eldri nemenda varð í skólanum eftir hrun enda var Vinnumálastofnun með átak í gangi þar sem atvinnulausir gátu farið í framhaldsskóla án þess að missa bæturnar. Því átaki er nú lokið. Atvinnuleysi var 3,1 prósent í júlímánuði og hafa atvinnulausir á höfuðborgarsvæðinu ekki verið færri frá því í nóvember 2008. Unnur Sverrisdóttir, aðstoðarforstjóri Vinnumálastofnunar, segir ekki koma sér á óvart að það fækki í skólum um leið og atvinnuástandið batni. „Það fækkaði í skólum í góðærinu. Svo fjölgaði í kreppunni og nú hefur atvinnuleysi minnkað aftur þannig að það kemur ekki á óvart að færri fari í nám,“ segir Unnur og bætir við að þegar þjóðir fari upp úr kreppu þá fjölgi störfum fyrst hjá ófaglærðum, til dæmis í byggingariðnaði og ferðamannaiðnaði. Því séu fleiri störf nú fyrir skólakrakka.
Mest lesið Gríðarlegur verðmunur á þyngdarstjórnunarlyfjum Innlent Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands Innlent Loftleiðir voru við það að kaupa tvær júmbó-þotur Innlent Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Innlent Ógnaði fólki með hníf og beitti svo lögreglumann ofbeldi Innlent Él og slydduél í dag og önnur lægð á morgun Veður Fisk rekur á land á Stokkseyri – Fólk sækir sér í soðið Innlent „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Erlent Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Loftleiðir voru við það að kaupa tvær júmbó-þotur Ógnaði fólki með hníf og beitti svo lögreglumann ofbeldi Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands Gríðarlegur verðmunur á þyngdarstjórnunarlyfjum Þónokkuð margir búnir að stytta leikskólavist á föstudögum Þær skipa efstu sæti lista Vor til vinstri Samfylkingin sé að vinna mót „í vondri pólitík“ Krúttlegir heimilishundar verða að sleðahundum við Mývatn „Ég tel þetta ekki vera ákveðna höfnun á Alexöndru“ Þrír með gervigreind leysa af tæplega tuttugu manna teymi Fisk rekur á land á Stokkseyri – Fólk sækir sér í soðið Kvenfélagskonur eru orðnar þreyttar á heilbrigðiskerfinu „Evrópusambandið hefur meiri hag af því núna að mæta óskum Íslands“ Loka veginum til morguns vegna snjóflóðs Gerir ráð fyrir harkalegri umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Tveir á slysadeild með áverka í andliti Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Tveir grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðbænum Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Sjá meira