Uppgröfturinn í kapp við tímann Freyr Bjarnason skrifar 19. ágúst 2014 12:00 Sjórinn brýtur landið við verbúðarústirnar og því fara rannsóknir fram í kapp við tímann.
Fornleifafræðingar- og nemar grófu niður á elsta byggingarstig verbúðarinnar á Gufuskálum við Hellissand í sumar og kom í ljós að um er að ræða mun stærri og flóknari byggingu en síðar varð. Ekki náðist að ljúka við að grafa upp minjarnar að þessu sinni en vonast er til að hægt verði að halda áfram á næsta ári. Komið var niður á a.m.k. fimm hús eða herbergi og liggja tvenn göng í allri byggingunni að húsunum. „Stærð og fjöldi húsanna kom mjög á óvart en ef litið er til allra þeirra mannvirkja sem eru við ströndina og teljast til verbúðarminja og þeirra gríðarmiklu mannvistarlaga sem er að finna á Gufuskálum stemmir stærð húsanna vel við þann fjölda fólks sem hefur væntanlega þurft að hýsa á meðan á vertíð stóð,“ segir stjórnandi verkefnisins, Lilja Björk Pálsdóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun Íslands.Fólk að störfum við uppgröftinn á Gufuskálum í sumar.Ýmsir gripir fundust við uppgröftinn, þar á meðal nokkrir taflmenn auk hnífa með fagurlega skreyttum skeftum úr beini. Að sögn Lilju er óljóst um áframhaldandi rannsóknir á Gufuskálum en þær upplýsingar sem þegar hafa fengist við rannsóknina segir hún vera ómetanlegar heimildir um umhverfisbreytingar og viðbrögð við þeim, en þó aðallega sjósókn og stækkandi hlutverk útgerðar á Íslandi á 15. öld. Útvegsminjarnar á Gufuskálum eru friðlýstar og það má í raun ekki grafa í þær. Fornleifavernd ríkisins, nú Minjastofnun Íslands, veitti undanþágu til þessara rannsókna vegna þess að sjórinn er að brjóta landið við verbúðarústirnar. Þá er einnig tjón af völdum uppblásturs en nýjar minjar eru sífellt að koma í ljós á svæðinu. Frá því mælingar hófust í tengslum við rannsóknina árið 2008 hafa þrír metrar brotnað framan af því svæði sem minjarnar standa á og hafa grjóthleðslur og mannvistarlög glatast við það. Fornleifarannsóknirnar á Gufuskálum hafa því verið stundaðar í kapp við tímann. Í fimm sumur hafa fornleifafræðingar og -nemar rannsakað útvegsminjar við Gufuskála á Snæfellsnesi. Rannsóknin er á vegum Fornleifastofnunar Íslands (FSÍ) og samstarfsaðila frá Bandaríkjunum og Bretlandi.
Mest lesið Allir um borð í rútunni Íslendingar Innlent Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Innlent Sjö fluttir með þyrlu eftir rútuslys á Suðurlandi Innlent Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Innlent Segir Enok hafa setið fyrir manni sem stakk hann hálfu ári áður Innlent Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Innlent Tveir bílar skullu saman á Reykjanesbraut Innlent Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Innlent Fleiri fréttir Fluttur slasaður frá Selfossi með þyrlu gæslunnar 78 snúninga plötuspilarar frá 1916 og 1933 í Skógum Fundu loks heitt vatn í Tungudal Dæmi um að börn þori ekki út í frímínútur Tveir bílar skullu saman á Reykjanesbraut Þakka að ekki fór verr í rútuslysi og hafnfirsk börn þora varla út Ágreiningur um túlkun sem nái inn á borð ríkisstjórnarinnar Segir veginn ekki hafa gefið sig Vilja nýtt hjúkrunarheimili í Vík í Mýrdal Yazan bíður enn svara Segir róðurinn vera að þyngjast fyrir Ísraelsmenn Íslendingurinn enn á sjúkrahúsi í Bangkok Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Öruggast að sjóða neysluvatn á Flateyri Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Rútuslys í Rangárþingi og óvissa um brottflutning palestínsks drengs Ummerki um að vegurinn hafi gefið sig Malbika hægri akrein Reykjanesbrautar á morgun Áfengissala, forsetakosningar og neytendamál Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni „Þessi iðnaður er með meira eða minna allt niður um sig“ Auglýst eftir ungum og efnilegum hökkurum Allir um borð í rútunni Íslendingar Óttast eyðileggingu íslenskrar brimbrettamenningar Geir og Jóhanna lýsa yfir stuðningi við Höllu Hrund Bregst við áhyggjum af áfengissölu og áhyggjur brimbrettakappa Sjö fluttir með þyrlu eftir rútuslys á Suðurlandi Lögreglan náði lausum grís Sjá meira