Innlent

Örtröð í löndun

Strandveiðimenn eru nú í önnum.
Strandveiðimenn eru nú í önnum.
Örtröð er nú í litlu höfninni á Arnarstapa á Snæfellsnesi, en þaðan róa nú um það bil 50 strandveiðibátar.

Þeir öfluðu allir vel í gær og var örtröð við löndun. Hátt í 500 strandveiðibátar réru í gær og stefnir í annað eins í dag. Þrátt fyrir þennan fjölda gekk allt vel að sögn stjórnstöðvar Gæslunnar, nema hvað nokkrir bátar duttu út úr sjálfvirka tilkynningaskyldukerfinu vegna rafmagnsleysis. En það greiddist úr því öllu án þess að til leitar kæmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×