Átján manns skiluðu inn listum yfir bestu íslensku plöturnar, gagnrýnendur, fjölmiðlafólk og nafntogaðir tónlistaráhugamenn. Platan sem er í efsta sæti á lista hvers og eins fær 5 stig, platan í öðru sæti 4 stig og þannig koll af kolli. Hægt er að skoða listana nánar hér fyrir neðan.
Atkvæði álitsgjafanna skiptust jafnar í ár en oft áður og aðeins munar einu atkvæði á plötunum í fyrsta og öðru sæti annars vegar og þeim í þriðja og fjórða sæti hins vegar.
Athygli vekur að frumraunir listamanna eða hljómsveita eiga drjúgan hlut af efstu sætunum í ár, en Grísalappalísa, Drangar, Cell 7 og Samaris sendu öll frá sér sínar fyrstu breiðskífur á árinu þótt sumir meðlimir þar innanborðs eigi að baki mörg ár í tónlistarbransanum.
Árangur Grísalappalísu verður að teljast sérlega glæsilegur, en sveitin nær þriðju sæti listans með sinni fyrstu plötu.
Nokkrar fyrirspurnir bárust frá álitsgjöfum varðandi það hvort plata John Grant, Pale Green Ghosts, flokkaðist sem íslensk plata þar sem hún var unnin á Íslandi og með íslensku tónlistarfólki og er meðal annars tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í ar.
Ákveðið var að telja þá plötu til erlendra verka í þessari umfjöllun. Val álitsgjafa á bestu erlendu plötum ársins verður kynnt í næstu helgarútgáfu Fréttablaðsins.
Bestu íslensku plötur ársins

Mammút - Komdu til mín svarta systir
28 stig
2.
Sigur Rós - Kveikur
27 stig
3.
Grísalappalísa - Ali
23 stig

Sin Fang - Flowers
22 stig
5.
Drangar - Drangar
19 stig
6.
Emilíana Torrini - Tookah
15 stig
7.
Tilbury - Northern Comfort
13 stig

Cell 7 - Cellf
12 stig
9.
Samaris - Samaris
10 stig
10.- 11.
Benni Hemm Hemm - Eliminate Evil, Revive Good Times
9 stig
10. - 11.
Just Another Snake Cult – Cupid Makes a Fool of Me
9 stig
Svona gáfu álitsgjafarnir stig

Arnareggert.is
1. Drangar - Drangar
2. Benni Hemm Hemm - Eliminate Evil, Revive Good Times
3. Sigur Rós - Kveikur
4. Strigaskór nr. 42 - Armadillo
5. Snorri Helgason - Autumn Skies
Kamilla Ingibergsdóttir
Iceland Airwaves
1. Mammút - Komdu til mín svarta systir
2. Grísalappalísa - ALI
3. Úlfur - White Mountain
4. Samaris - Samaris
5. Dj. flugvél og geimskip - Glamúr í geimnum
Ólafur Páll Gunnarsson
Rás 2
1. Drangar - Drangar
2. Mammút - Komdu til mín svarta systir
3. Sigur Rós - Kveikur
4. Emilíana Torrini - Tookah
5. Hallur Ingólfsson - Öræfi
Sunna Ben
Barmageddon
1. Cell 7 - Cellf
2. Mammút - Komdu til mín svarta systir
3. Samaris - Samaris
4. Sin Fang - Flowers
5. Dj. Flugvél og geimskip - Glamúr í geimnum
Árni Þór Jónsson
Sýrður rjómi
1. Benni Hemm Hemm - Eliminate Evil, Revive Good Times
2. Grísalappalísa - ALI
3. Just Another Snake Cult - Cupid Makes a Fool of Me
4. Drangar - Drangar
5. Sin Fang - Flowers
Kristín Gróa Þorvaldsdóttir
Topp 5 á föstudegi
1. Emiliana Torrini - Tookah
2. Sigur Rós - Kveikur
3. Robert The Roommate - Robert The Roommate
4. Sin Fang - Flowers
5. Tilbury - Northern Comfort

Fréttatíminn
1. Tilbury - Northern Comfort
2. Sigur Rós - Kveikur
3. Snorri Helgason - Autumn Skies
4. Sing Fang - Flowers
5. Mammút - Komdu til mínsvarta systir
Helena Quillia
1. Sigurrós - Kveikur
2. Sin Fang - Flowers
3. Ólafur Arnalds - For Now I Am Winter
4. Múm - Smilewound
5. Bloodgroup - Tracing Echoes
Ómar Úlfur Eyþórsson
X-ið 977
1. Grísalappalísa - ALI
2. Mammút - Komdu til mín svarta systir
3. Leaves - See You In The Afterglow
4. Drangar - Drangar
5. Ultra Mega Technobandið Stefán!
Björn Teitsson
Lemúrinn.is
1. Grísalappalísa - ALI
2. Sin Fang - Flowers
3. Dj. Flugvél og geimskip - Glamúr í geimnum
4. Múm - Smilewound
5. Samaris - Samaris
Þórður Helgi Þórðarson
Rás 2
1. Sigur Rós - Kveikur
2. Berndsen - Planet Earth
3. Cell 7 - Cellf
4. Emilía Torrini - Tookah
5. Íkorni - Íkorni
Trausti Júlíusson
1. Mammút - Komdu til mín svarta systir
2. Grísalappalísa - ALI
3. Ólöf Arnalds - Sudden Elevation
4. Just Another Snake Cult - Cupid Makes a Fool of Me
5. DJ flugvél og geimskip - Glamúr í geimnum

Fréttablaðið
1. Drangar - Drangar
2. Ojba Rasta - Friður
3. Múm - Smilewound
4. Sin Fang - Flowers
5. Stormurinn - Bubbi
Egill Harðar
Rjóminn
1. Tilbury - Northern Comfort
2. Just Another Snake Cult - Cupid Makes A Fool of Me
3. Íkorni - Íkorni
4. Sin Fang - Flowers
5. Jóhann Kristinsson - Headphones
Kjartan Guðmundsson
Fréttablaðið
1. Bloodgroup - Tracing Echoes
2.Cell 7 - Cellf
3. Sin Fang - Flowers
4. Tilbury - Northern Comfort
5. Grísalappalísa - ALI
Freyr Bjarnason
Fréttablaðið
1. Mammút - Komdu til mín svarta systir
2. Samaris - Samaris
3.Sigur Rós - Kveikur
4. Emiliana Torrini - Tookah
5. Íkorni - Íkorni
Halldór Ingi Andrésson
Plötudómar.com
1. Megas & Bragi Valdimar - Frumvarp til laga um með- og umferð á fjallvegum eða Jeppi á Fjalli
2. Emiliana Torrini - Tookah
3. Bubbi - Stormurinn
4. Kaleo - Kaleo
5. Skepna - Skepna
Kjartan Atli Kjartansson
Fréttablaðið
1. Emmsjé Gauti - Þeyr
2. Steinar - Beginning
3.Ojba Rasta - Friður
4. Eyþór Ingi og Atómskáldin
5. Hjálmar og Jimi Tenor - Dub og Doom