Íslenskar ráðgátur 13. september 2013 15:44 Helga Arnar sér um þáttinn Óupplýst lögreglumál á Stöð 2. „
Ég er heilluð af störfum lögreglunnar eftir vinnslu þáttanna. Ég gæti vel hugsað mér að vera rannsóknarlögreglumaður sjálf, efast þó um að ég næði þrekprófinu,“ segir Helga Arnardóttir fréttamaður. Hún skoðar íslenskar ráðgátur í glænýjum þáttum, Óupplýst lögreglumál. Brynja Dögg Friðriksdóttir framleiðir þættina sem hefja göngu sína á Stöð 2 í haust. „Við fjöllum um morð, bankarán og bruna í þáttunum. Mörg þessara mála hafa verið í umræðunni og fólk man jafnvel vel eftir þeim, en einnig fjöllum við um gömul mál sem ekki hefur verið fjallað um áður. Elsta málið er frá árinu 1945. Við veltum líka fyrir okkur hvort í einhverjum tilfellum hafi verið um slys að ræða eða glæp og hvað hafi orðið til þess að það fennti yfir slóð lögreglunnar.“ Í þáttunum ræðir Helga við aðstandendur, fórnarlömb og lögreglumenn sem komu að málunum á sínum tíma. Hún segir ómælda rannsóknarvinnu liggja að baki vinnslu þáttanna. „Ég reyni að hafa uppi á öllum sem koma að málunum; vitnum, fjölskyldu og rannsakendum. Lögreglan hefur verið okkur einstaklega hjálpleg um milligöngu og öflun gagna. Elsta málið fundum við fyrir tilviljun í blaðagrein og voru öll gögn lögreglunnar um það komin inn á Þjóðskjalasafn. Það morðmál varð aldrei upplýst og í því tilfelli var enginn afkomandi eða nákominn fórnarlambinu á lífi. Fjarskyld frænka var svo vinsamleg að veita okkur viðtal um málið,“ segir Helga. Hún segir jafnframt ótrúlega vel hafa gengið að fá fólk til að rifja upp liðna atburði. „Það er ríkt í fólki að vilja upplýsa málin. Við rákum okkur afar sjaldan á að fólk vildi ekki tjá sig og liðsinna okkur. Svona umfjallanir höfða einnig til fólks almennt. Fólk hefur einfaldlega áhuga á ráðgátum. Ég hafði gengið með hugmyndina að þáttunum í maganum í þrjú ár,“ segir Helga, en fyrri þáttaröð hennar, Mannshvörf, sló rækilega í gegn á Stöð 2 síðasta vetur. En verður framhald á Óupplýstum lögreglumálum? „Nei, lögreglan á Íslandi er dugleg að upplýsa mál. Það eru fá mál sem eru fullkomin ráðgáta, sem betur fer. Markmiðið er að festa fólki þessi mál í minni og hver veit nema einhver tali einhvern tíma sem verður til þess að hjálpa.“
Mest lesið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Fleiri fréttir Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Sjá meira