Eigingjarnt að sitja einir að tónleikunum Ólöf Skaftadóttir skrifar 5. september 2013 10:00 Þeir Baldur Baldursson, Sveinbjörn Pálsson og Símon Guðmundsson stjórna Funkþættinum. Mynd/Brynjar Snær
Funkþátturinn á X-inu stendur fyrir mánaðarlegum tónleikum á Boston á Laugavegi á fimmtudaginn. „Kvöldin eru alltaf fyrsta fimmtudag hvers mánaðar og eru einnig send út í beinni útsendingu. „Kvöldin snúast um sýna það besta sem er að eiga sér stað í raftónlist á Íslandi að hverju sinni, að okkar mati“ segir Baldur Baldursson, einn stjórnenda Funkþáttarins. Ásamt Baldri koma að þættinum þeir Sveinbjörn Pálson og Símon Guðmundsson, betur þekktir sem Don Balli Funk, Terrordisco og Símon Fknhndsm. „Kvöldin byrjuðu þannig að við vorum með livekvöld einu sinni í mánuði í þættinum. Þá komu hljómsveitir með allar sínar græjur og settu upp eins og þær væru að spila á tónleikastað. Sumir gengu meira að segja svo langt að klæða sig í þau föt sem farið er í þegar spilað er live, þrátt fyrir að við værum bara þrír að horfa. Eftir hartnær ár af þessu uppgötvuðum við að þetta væri bara eigingirni – að við sætum þrír að tónleikum einu sinni í mánuði! Þá var þetta fært á Boston,“ útskýrir Baldur. „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga fyrir þessum kvöldum bæði hjá fólki og hljómlistarmönnum,“ segir Baldur jafnframt. Kvöldið á fimmtudaginn er það fimmta í röðinni og hljómsveitin Sykur kemur til með að spila. Þeir sem hafa spilað áður eru Samaris, Oculus, Hermigervill og Viktor Birgis, svo einhverjir séu nefndir. „Funkþátturinn er stökkpallur fyrir íslenska raftónlistarmenn til að kynna tónlist sína. Sérstaklega um þessar mundir þegar æ færri staðir eru til staðar fyrir tónlistarfólk að flytja tónlist sína,“ bætir Baldur við. „Til að mynda hefur hljómsveitin Gus Gus frumflutt síðustu þrjár plötur sínar í þættinum okkar, Retro Stefson hafa frumflutt hjá okkur af sinni tónlist, FM Belfast og fleiri góðir,“ segir Baldur jafnframt. „Við hvetjum alla raftónlistarmenn sem eru að grúska í bílskúrum, svefnherbergjum eða á kaffihúsum að hafa samband við okkur, það er ótrúlega gaman að fá að vera hluti af slíku og í raun stærsta ástæða þess að við höldum úti þessum þætti,“ bætir Baldur við. „Við erum samt frekar latir að svara útsendingarsímanum, þannig að Facebook er besta leiðin til að ná sambandi,“ segir Baldur, léttur í bragði.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira