Fjölhæfur búningahönnuður 10. júlí 2013 08:00 Karen Briem lýkur mastersnámi í búningahönnun frá London University of the Arts en hún verður fyrsti Íslendingurinn til að ljúka mastersnámi við deildina.Fréttablaðið/vilhelm „
Samkvæmt kennaranum mínum er ég fyrsti Íslendingurinn til þess að ljúka þessu námi, sem er virkilega gaman,“ segir Karen Briem. Í desember lýkur Karen mastersnámi í búningahönnun við London University of the Arts. Karen segir að mastersgráðan komi til með að opna marga möguleika. „Búningahönnun er miklu meira nám en flestir gera sér grein fyrir. Það eru rosalega margir möguleikar í faginu og þeir geta tengst öllu sem hefur eitthvað með „performance“ að gera. Búningahönnuðir geta starfað við nútímadanssýningar, óperur og með fjöllistahópum, svo eitthvað sé nefnt.“ Áður en Karen snéri sér að búningahönnun hélt hún til Kína til að læra kínversku. „Mig langaði að læra málið því það heillaði mig svo að sjá hversu myndrænt það var,“ segir Karen, sem í kjölfar dvalarinnar hélt til Danmerkur og lauk BS-gráðu í Copenhagen Business School. Þegar Karen var 17 ára fékk hún að upplifa hvernig tökur á stórmynd fara fram, þegar kvikmyndin Lara Croft: Tomb Raider var tekin upp hér á landi. „Að vera innan um svona rosalega margt fólk var spennandi og einnig að sjá hvernig hlutirnir ganga fyrir sig bak við tjöldin. Við vorum uppi á Jökulsárlóni í einhverja viku og ég var með í tökum sem kvikmyndaðar voru langt í burtu, til að fylla upp í vissar senur,“ segir Karen, og bætir við að þessi reynsla hafi setið lengi í henni. Hún vinnur að mastersverkefni sínu í sumar en lauk nýverið við gerð búninga fyrir tónlistarmyndband í Bretlandi. „Það var alveg virkilega skemmtilegt og vonandi að maður geti gert enn meira af því.“
Mest lesið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Lífið Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Tilkynntu óvart dauða konungsins Lífið Hvað veistu um... flugvelli? Lífið Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Tónlist „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Lífið Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Lífið Rick og Morty á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Lífið samstarf Fleiri fréttir Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Sjá meira