Perlan fær steypireyði sem Húsavík stólaði á Garðar Örn Úlfarsson skrifar 24. apríl 2013 11:00 Þannig sjá hvalasafnsmenn fyrir sér steypireyðina af Skaga í nýrri byggingu á Húsavík. Beinagrindin er 25 metra löng og fjórir metrar á hæð. Myndir/Hvalasafnið Húsavík
Afar fágæt beinagrind úr steypireyði sem rak á land við Ásbúðir á Skaga sumarið 2010 er nú orðin bitbein Hvalasafnsins á Húsavík og Náttúruminjasafnsins í Perlunni. „Við höfum búið okkur til ákveðna sérstöðu í þessum efnum og teljum eðlilegt að þessi grind komi hingað,“ segir Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, þar sem bæjarráðið skoraði á síðasta fundi á Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, sem æðsta yfirmann safnamála í landinu, að lýsa því yfir að beinagrindin yrði sett upp á Húsavík. Ekki náðist tal af Katrínu í gær. Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar, sem á steypireyðina og er að verka beinin, segir þau mjög merkileg og að aðalatriðið sé að þau verði til sýnis fyrir almenning. Bæði Hvalasafnið á Húsavík og Náttúruminjasafn Íslands, sem fengið hafi 500 milljónir frá ríkinu til að búa til sýningu í Perlunni, vilji fá hvalinn. „Okkur er svo sem sama hvar hún er, svo framarlega sem hún er til sýnis. Ef Náttúruminjasafnið vill fá hvalinn í sína grunnsýningu um náttúru Íslands þá munum við láta hann fara þangað. Ef ekki þá eru Húsvíkingarnir næstir í röðinni,“ segir Jón Gunnar og bendir á að dýrt sé að setja beinagrindina upp. „Þar verður ekkert tjaldað til einnar nætur. „Ef við setjum hana upp í Perlunni verður hún þar í að minnsta kosti tíu til tuttugu ár.“ Hvalasafnið og félagið Garðarshólmi eru í samstarfi um uppbyggingu safna-, menningar- og fræðastarfsemi á lóð Hvalasafnsins á Húsavík. Beinagrindinni af steypireyðinni er ætlað að verða krúnudjásnið í verkefninu og frumdrög að húsi yfir hana eru tilbúin. Einar Gíslason, framkvæmdastjóri Hvalasafnsins, segir að frá því að steypireyðina rak á land hafi Hvalasafnið, með vitund og vilja mennta- og menningarmálaráðuneytisins, unnið að því að fá grindina norður. „Að fá slíka segla inn á svæðið styrkir auðvitað það yfirlýsta markmið ríkisstjórnarinnar að dreifa ferðamönnum meira um landið. Þessi beinagrind á auðvitað ekkert heima í Perlunni heldur hér í höfuðborg hvalaskoðunar í Evrópu,“ segir framkvæmdastjóri Hvalasafnsins.Hvalreki á Skaga. Steypireyðurin við Ásbúðir var engin smásmíð. Mynd/Valur Örn Þorvaldsson
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira