Tónlist

Geirfinnsmálið hefði getað eyðilagt ferilinn

Bubbi gefur út Storminn í maí og er að taka upp nýja sjónvarpsþáttaröð, Beint úr messa. Mynd/Valli
Bubbi gefur út Storminn í maí og er að taka upp nýja sjónvarpsþáttaröð, Beint úr messa. Mynd/Valli
Titillagið á næstu plötu Bubba Morthens, Storminum, fjallar um Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Það var áður fjórtán mínútur að lengd en Bubbi ákvað að stytta það niður í tíu. Erindin í textanum eru hvorki fleiri né færri en 28 talsins.

„Þetta lag hefur verið lengi í vinnslu hjá mér. Sævar [Cieselski] var ágætis kunningi minn, Tryggvi Rúnar [Leifsson] var vinur minn og ég hef þekkt Erlu Bolladóttur frá 1980," segir Bubbi sem minnist þess er hann talaði um þetta umdeilda mál á hringferð sinni um landið 1983 ásamt þáverandi hljóðmanni sínum, Pétri Gíslasyni Blöndal. „Það fór þannig að á nokkrum tónleikum stóðu menn upp, görguðu á mig og gengu út," segir hann. „Þannig var andrúmsloftið gagnvart þessu fólki í þjóðfélaginu. Við vorum að tala um að þetta væri réttarmorð en viðbrögðin voru það heiftarleg að við tókum þetta út af dagskrá. Við héldum að þetta gæti eyðilagt ferilinn. En þetta yfirgaf mig aldrei."

Bubbi segist í mörg ár hafa gert atlögu að því að semja lag um málið en einhvern veginn alltaf hrökklast undan. „Fyrir rúmu ári las ég öll málskjölin og þá hafði ég úthald til að klára þetta. Ég einblíni dálítið á sögu Erlu og Sævars en fer samt í grófum dráttum í gegnum allt málið."

Eitt lengsta lagið á ferlinum

Aðspurður telur Bubbi að Stormurinn sé eitt lengsta lag sem hann hefur samið. Fleiri lög á plötunni eru löng, eða sjö til átta mínútur. Liggur þér mikið á hjarta?

„Já. Þú ræður því ekkert hvert listin fer með þig. Ég er ekki í músík til að vera á kjötmarkaðinum og ekki er ég í músík til að koma lögum á „hitt"-lista. Ég er í músík vegna þess að ég myndi deyja ef ég væri ekki að búa til músík," segir hann. „Þú byrjar á lagi og það dregur þig áfram. Allt í einu ertu kominn inn í einhverja veröld og heldur bara áfram," bætir hann við en tekur fram að stutt lög á borð við Allt var það krónunni að kenna séu líka á plötunni. „Þetta er mjög „prímitív" plata. Þarna er mikið um kassagítar og mandólín og líka kontrabassi og harmóníka. Ég spila mikið á munnhörpu. Þetta er rótarplata, mjög bandarísk."

Sjónvarpsþættir í togurum

Auk þess að gefa út Storminn í maí ætlar Bubbi að fylgja eftir sjónvarpsþáttunum Beint frá býli með nýjum þáttum sem heita Beint úr messa og verða sýndir á Stöð 2 í haust. Þar verða tónlistaratriði flutt í togurum landsins og verða sex til átta þættir teknir upp.

„Mig langaði að taka hljómsveitir og setja þær í óvenjulegar aðstæður. Mig langaði að sýna landsmönnum hvað er á bak við allan þennan pening sem togararnir eru að koma með í land. Þarna er hold og blóð á ferðinni en það eina sem maður heyrir um útgerðir í dag er kvótaumræða. Það er varla að maður heyri rætt um sjávarútveginn í jákvæðum tón," segir Bubbi og bætir við:

„Það eru tvær kynslóðir á mölinni sem vita ekki hvernig togari lítur út. Þessir nýju togarar eru líka hátækniskrímsli. Brúin er eins og þúsundfaldur iPad. Fiskurinn á ekki séns lengur," segir hann og hlær dátt.

Gylfi Ægis fór hamförum

Þá verða vistarverur togaranna einnig skoðaðar og tekin viðtöl við skipstjóra og eiginkonur háseta. Einn þáttur hefur verið tekinn upp þar sem Gylfi Ægisson tróð upp með Pöpunum fyrir áhöfn Birtings frá Neskaupstað.

„Það var rosalega gaman og Gylfi fór hamförum." Bubbi ætlar sjálfur að spila fyrstu plötu sína Ísbjarnarblús um borð í togara Eimskips í einum þáttanna. Stuðmenn og Retro Stefson spila einnig um borð.

Brot út texta lagsins StormurinnÞað var vetur og vindurinn kaldur

Þá vantaði lík upp á borð

Hún sagði enginn sleginn var kaldur

Enginn dó, enginn framdi neitt morð

Klefaljósið höfðu logandi um nætur

Muldu geðlyf í mat þessa manns

sem var sagður hafa satans rætur

Sagður afkvæmi andskotans

Héldu höfði hans oní fötu

Af vatni urðu vitin full

Fengu númer fengu nafn á götu

Fengu frá honum allskonar bull

Myndir í möppu honum sýndu

Sextán hausar hlið við hlið

Á ljósmyndir lengi þeir rýndu

Þrjá kannaðist kauði við

Saklausa menn settu í klefa

sem vissu aldrei neitt

sem grófu sér gryfjufylli af efa

Getur verið að mann ég hafi deytt?

Fékk magnaðar viðtökur á ÍsafirðiUm páskana spilaði Bubbi í fyrsta sinn á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður, sem er nefnd eftir lagi hans af plötunni Dögun. Þegar hann spilaði lagið og söng línuna „Aldrei fór ég suður" ætlaði þakið að rifna af húsinu.

„Ég fékk alveg magnaðar viðtökur. Þetta unga fólk kunni lögin mín og allir sungu með. Það var rosa stemning þrátt fyrir að ég væri að taka Rómeó og Júlíu á rafmagnsgítar í metalútgáfu. Ég fór með fjölskylduna með mér og það skemmtu sér allir konunglega. Ég borðaði á besta fiskveitingastað veraldar, sennilega, Tjöruhúsinu. Maður var ekki svikinn þarna," segir Bubbi.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×