Geirfinnsmálið hefði getað eyðilagt ferilinn 8. apríl 2013 16:00 Bubbi gefur út Storminn í maí og er að taka upp nýja sjónvarpsþáttaröð, Beint úr messa. Mynd/Valli
Titillagið á næstu plötu Bubba Morthens, Storminum, fjallar um Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Það var áður fjórtán mínútur að lengd en Bubbi ákvað að stytta það niður í tíu. Erindin í textanum eru hvorki fleiri né færri en 28 talsins. „Þetta lag hefur verið lengi í vinnslu hjá mér. Sævar [Cieselski] var ágætis kunningi minn, Tryggvi Rúnar [Leifsson] var vinur minn og ég hef þekkt Erlu Bolladóttur frá 1980," segir Bubbi sem minnist þess er hann talaði um þetta umdeilda mál á hringferð sinni um landið 1983 ásamt þáverandi hljóðmanni sínum, Pétri Gíslasyni Blöndal. „Það fór þannig að á nokkrum tónleikum stóðu menn upp, görguðu á mig og gengu út," segir hann. „Þannig var andrúmsloftið gagnvart þessu fólki í þjóðfélaginu. Við vorum að tala um að þetta væri réttarmorð en viðbrögðin voru það heiftarleg að við tókum þetta út af dagskrá. Við héldum að þetta gæti eyðilagt ferilinn. En þetta yfirgaf mig aldrei." Bubbi segist í mörg ár hafa gert atlögu að því að semja lag um málið en einhvern veginn alltaf hrökklast undan. „Fyrir rúmu ári las ég öll málskjölin og þá hafði ég úthald til að klára þetta. Ég einblíni dálítið á sögu Erlu og Sævars en fer samt í grófum dráttum í gegnum allt málið."Eitt lengsta lagið á ferlinum Aðspurður telur Bubbi að Stormurinn sé eitt lengsta lag sem hann hefur samið. Fleiri lög á plötunni eru löng, eða sjö til átta mínútur. Liggur þér mikið á hjarta? „Já. Þú ræður því ekkert hvert listin fer með þig. Ég er ekki í músík til að vera á kjötmarkaðinum og ekki er ég í músík til að koma lögum á „hitt"-lista. Ég er í músík vegna þess að ég myndi deyja ef ég væri ekki að búa til músík," segir hann. „Þú byrjar á lagi og það dregur þig áfram. Allt í einu ertu kominn inn í einhverja veröld og heldur bara áfram," bætir hann við en tekur fram að stutt lög á borð við Allt var það krónunni að kenna séu líka á plötunni. „Þetta er mjög „prímitív" plata. Þarna er mikið um kassagítar og mandólín og líka kontrabassi og harmóníka. Ég spila mikið á munnhörpu. Þetta er rótarplata, mjög bandarísk."Sjónvarpsþættir í togurum Auk þess að gefa út Storminn í maí ætlar Bubbi að fylgja eftir sjónvarpsþáttunum Beint frá býli með nýjum þáttum sem heita Beint úr messa og verða sýndir á Stöð 2 í haust. Þar verða tónlistaratriði flutt í togurum landsins og verða sex til átta þættir teknir upp. „Mig langaði að taka hljómsveitir og setja þær í óvenjulegar aðstæður. Mig langaði að sýna landsmönnum hvað er á bak við allan þennan pening sem togararnir eru að koma með í land. Þarna er hold og blóð á ferðinni en það eina sem maður heyrir um útgerðir í dag er kvótaumræða. Það er varla að maður heyri rætt um sjávarútveginn í jákvæðum tón," segir Bubbi og bætir við: „Það eru tvær kynslóðir á mölinni sem vita ekki hvernig togari lítur út. Þessir nýju togarar eru líka hátækniskrímsli. Brúin er eins og þúsundfaldur iPad. Fiskurinn á ekki séns lengur," segir hann og hlær dátt.Gylfi Ægis fór hamförum Þá verða vistarverur togaranna einnig skoðaðar og tekin viðtöl við skipstjóra og eiginkonur háseta. Einn þáttur hefur verið tekinn upp þar sem Gylfi Ægisson tróð upp með Pöpunum fyrir áhöfn Birtings frá Neskaupstað. „Það var rosalega gaman og Gylfi fór hamförum." Bubbi ætlar sjálfur að spila fyrstu plötu sína Ísbjarnarblús um borð í togara Eimskips í einum þáttanna. Stuðmenn og Retro Stefson spila einnig um borð. Brot út texta lagsins StormurinnÞað var vetur og vindurinn kaldurÞá vantaði lík upp á borðHún sagði enginn sleginn var kaldurEnginn dó, enginn framdi neitt morðKlefaljósið höfðu logandi um næturMuldu geðlyf í mat þessa mannssem var sagður hafa satans ræturSagður afkvæmi andskotansHéldu höfði hans oní fötuAf vatni urðu vitin fullFengu númer fengu nafn á götuFengu frá honum allskonar bullMyndir í möppu honum sýnduSextán hausar hlið við hliðÁ ljósmyndir lengi þeir rýnduÞrjá kannaðist kauði viðSaklausa menn settu í klefasem vissu aldrei neittsem grófu sér gryfjufylli af efaGetur verið að mann ég hafi deytt? Fékk magnaðar viðtökur á ÍsafirðiUm páskana spilaði Bubbi í fyrsta sinn á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður, sem er nefnd eftir lagi hans af plötunni Dögun. Þegar hann spilaði lagið og söng línuna „Aldrei fór ég suður" ætlaði þakið að rifna af húsinu. „Ég fékk alveg magnaðar viðtökur. Þetta unga fólk kunni lögin mín og allir sungu með. Það var rosa stemning þrátt fyrir að ég væri að taka Rómeó og Júlíu á rafmagnsgítar í metalútgáfu. Ég fór með fjölskylduna með mér og það skemmtu sér allir konunglega. Ég borðaði á besta fiskveitingastað veraldar, sennilega, Tjöruhúsinu. Maður var ekki svikinn þarna," segir Bubbi.
Tónlist Mest lesið „Ég hef aldrei horft á mig sem fórnarlamb“ Lífið Gæti orðið að Gísla á Uppsölum ef hún ögrar sér ekki Lífið Tómas hitti sofandi hjartaskurðlækninn Lífið Krakkatían: Landsliðið, eldgos og nýr forseti Lífið Klæðir sig oft óbeint í stíl við dóttur sína Tíska og hönnun „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Frikki Dór reyndi að slá Íslandsmet Lífið Fékk sér þrjú húðflúr í andlitið Lífið Eigendur Akureyri Backpackers selja höllina Lífið Fréttatía vikunnar: Nýr forseti, meindýr og þingið Lífið Fleiri fréttir Króli gat ekki hugsað um neitt annað en Bjór Leitt að geta ekki auglýst leynivopnið sem myndi trekkja að Yo-Yo Ma kemur til landsins „Pínu erfitt fyrir viðkvæman listamann“ Gervispilanir tröllríða vinsældarlista Spotify Bríet og Birnir rifu þakið af klúbbnum Samdi Höllusmellinn á tuttugu mínútum Krefjandi að semja tónlist um ofbeldi sem þolandi „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ „Aldrei verið jafn stolt af mér“ Páll Óskar og Skrattar í fyrsta sinn á sama sviði „BOY BYE“ við þá röngu en „BOY HÆ“ við þann rétta Bauð pabba að syngja með sér um íslensku sumargaslýsinguna Bashar Murad kemur fram á endalokum LungA „Við ætlum bókstaflega að rífa þakið af húsinu“ Rífandi stemning og valdefldar tónlistarkonur Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks „Þægileg blanda af von og trega“ Kom fram sem stórstjarna „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn Sjá meira