Tekur lengri tíma en ég reiknaði með Álfrún Pálsdóttir skrifar 11. mars 2013 14:30 Jón Jónsson bíður rólegur eftir að komast út til að uppfylla samning sinn við Sony en er spenntur yfir því að verða faðir í fyrsta sinn í sumar. Mynd/Pjetur „
Það er klárt mál að það var alltaf stefnan að ná gullinu, það kom svona hægt og bítandi,“ segir tónlistarmaðurinn, ritstjórinn og knattspyrnukappinn Jón Jónsson, en hann fékk á dögunum gullplötu fyrir plötu sína Wait for Fate. Platan er sú fyrsta sem tónlistarmaðurinn gefur frá sér en hún kom út sumarið 2011. Síðan þá hefur hún selst jafnt og þétt en meðal laga sem hafa náð miklum vinsældum á plötunni eru Wanna Get In, Lately, Always Gonna be There og When You"re Around. „Sem ritstjóri Monitors fæ ég reglulega sendar sölutölur og sá að platan var alltaf að tikka eitthvað smá inn. Það er kannski vandræðalegt að segja frá þessu en ég ákvað því að senda póst á Senu og athuga hvort ég færi ekki að nálgast gullið. Sama dag fékk ég símtal um að takmarkinu væri náð. Það má því segja að ég hafi uppgötvað þetta sjálfur.“ Jón komst í fréttirnar síðasta haust er það var opinberað að hann hefði landað plötusamning við LA Reid hjá útgáfurisanum Sony. Jón viðurkennir að málin hafi tekið aðeins lengri tíma en hann bjóst við enda átti hann von á því að fara út síðastliðið haust. „Þetta er risabatterí og margir sem koma að mínum málum. Ekki beint eins og hér heima þar sem nóg er að rúnta bara milli útvarpsstöðvanna með nýja lagið sitt. Ég bjóst samt við að vera búinn að fara út og fá stöðuna en vona að það verði sem fyrst,“ segir Jón sem er í reglulegu sambandi við sinn mann úti, Bryant Reid, en síðan um áramótin hefur hann tekið upp þrettán ný lög. „Ég hefði viljað vera búinn að gefa út aðra plötu en það hefur allt verið í biðstöðu. Nú er ég með þrettán ný lög tilbúin og á því von á að nýju og gömlu efni verði blandað saman á plötunni sem verður gefin út úti.“ Jón kveðst rólegur yfir þessu öllu saman enda með góðan samning í höndunum. Nú er hann að búa sig undir föðurhlutverkið en Jón og kærasta hans, Hafdís Björk, eiga von á sínu fyrsta barni í júní. Hann hefur engar áhyggjur af því að geta ekki blandað saman rísandi tónlistarferli og föðurhlutverkinu enda eigi hann mjög skilningsríka kærustu. „Ég er spenntur fyrir þessu og ekkert stressaður enn. Núna reyni ég samt að vera extra duglegur að spila til að hafa efni á kerru. Það er svolítið fyndið.“
Mest lesið Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Bíó og sjónvarp Sonur Rögnu og Árna fæddur Lífið Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Lífið Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Bíó og sjónvarp Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lífið Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Sjá meira