Lífið

Psy gefur út nýtt lag í apríl

nýtt lag
Psy gefur út nýtt lag í næsta mánuði sem margir bíða spenntir eftir.
nýtt lag Psy gefur út nýtt lag í næsta mánuði sem margir bíða spenntir eftir. nordicphotos/getty
Suður-kóreski rapparinn Psy ætlar að gefa út nýtt lag í apríl sem beðið er eftir með mikilli eftirvæntingu. Það mun fylgja eftir hinu gífurlega vinsæla Gangnam Style sem sló í gegn úti um allan heim í fyrra.

Psy ætlar að halda stóra tónleika í Seúl af þessu tilefni. Í tilkynningu sem hann setti á Youtube sagðist hann ætla að gefa lagið út á kóresku og ensku.

Hinn 35 ára Psy, sem heitir réttu nafni Park Jae-Sang, er þessa dagana á tónleikaferð um Ástralíu eftir að hafa áður verið á ferðalagi um Suður-Ameríku. Fyrr í vikunni gaf hann út fjögurra laga plötu með endurhljóðblönduðum útgáfum af Gangnam Style þar sem bandarísku rappararnir 2 Chainz og Tyga voru gestasöngvarar.

Gangnam Style er vinsælasta myndband allra tíma á Youtube og núna hafa 1,2 milljarðar manna horft á það. Lagið var í febrúar síðastliðnum kosið lag ársins á Golden Disk-hátíðinni, sem er kóreska útgáfan af Grammy-verðlaununum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.