Tvö þúsund kafarar borguðu ofan í Silfru Garðar Örn Úlfarsson skrifar 1. maí 2013 07:00 Stigi auðveldar köfurum að komast upp úr Silfru en viðkvæmur gróður á brúnum gjárinnar er óvarinn fyrir traðki forvitinna áhorfenda.Mynd/Hörður Jónasson „
Ég hræðist ekki þessa aðsókn þegar við getum gert aðbúnaðinn góðan og fyrirtækjunum líður vel,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, þar sem aðsókn í köfun og snorkl í gjána Silfru var verulega umfram það sem menn áttu von á í mars og apríl. Í byrjun mars tók gildi eitt þúsund króna gjald fyrir köfun í Silfru. Síðan hafa rúmlega tvö þúsund manns verið skráðir þar í köfun, langflestir á vegum ferðaþjónustufyrirtækja. Rekstraráætlun þjóðgarðsins gerir hins vegar ráð fyrir sex til sjö þúsund gestum á ári. Ólafur bendir á að mars og apríl séu alls ekki á háannatíma í köfuninni. „Þetta er mest yfir sumarið og bjartasta tímann en stendur ótrúlega lengi fram eftir haustinu. Það er hægt að draga þær ályktanir að þetta fari töluvert fram úr þeim sex til átta þúsundum sem við gerðum ráð fyrir,“ segir þjóðgarðsvörður sem kveðst vera farinn að vonast til að meira fé en áður var gert ráð fyrir fáist til að bæta aðstöðuna við Silfru. Uppstig fyrir kafarana, fráleggsborð og gámasalerni hafi verið á áætlun ársins. „Það sem er brýnast að gera núna er að koma í veg fyrir gróðurskemmdir á svæðinu, sérstaklega fram með gjánni. Þar er allur mosi uppsparkaður og tættur. Einu skynsamlegu viðbrögðin eru að leggja þar stíga svo þeir sem hafa áhuga á að ganga fram á brúnirnar og fylgjast með köfurunum geti gert það án þess að spilla landinu. Við gerðum ekki ráð fyrir að þetta yrði hægt fyrr en næsta sumar en ég er farinn að gæla við að við getum hrint þessu í framkvæmd strax í sumar,“ segir Ólafur. Þjóðgarðsvörður undirstrikar að öllu fé sem innheimtist af köfurunum eigi að verja í þjónustu við þá sjálfa. Samstarfið sé ánægjulegt og árekstralaust eftir að nýjar öryggisreglur voru innleiddar og gjaldið sett á. „Hitt var alveg vonlaust, eins og þetta var orðið. Hvorki landið né aðstaðan þoldi þetta. Þetta er ánægjuefni og skapar nýja möguleika til að standa vel að þessu öllu saman,“ segir Ólafur sem kveður athyglisvert hversu köfunin sé orðin vinsæl. „Þetta er áhugaverð þjónusta fyrir Þingvelli og fyrir þessi fyrirtæki og íslenska ferðaþjónustu alla.“
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira