Ritstjóri kærður fyrir ærumeiðandi skrif 27. janúar 2013 16:31
Fyrirsögnin „Sýknaður af níði passar börn" er sögð misvísandi og ærumeiðandi í kæru á hendur ritstjóra Akureyri Vikublaðs til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands. Það er dagforeldri á Akureyri sem leggur fram kæruna á hendur Birni Þorlákssyni, ritstjóra Akureyri vikublaðs. Í kærunni segir að fyrirsögn fréttarinnar hafi valdið miklum sársauka og vanlíðan, ekki síst hjá börnum og aðstandendum viðkomandi dagsforeldris. Í fréttinni sem skrifuð var fyrr í mánuðinum var fjallað um dagforeldri á Akureyri sem passi 4-6 börn þrátt fyrir að hafa farið fyrir dóm vegna gruns um kynferðisbrot gagnvart syni sínum. Dagforeldrið, sem er karlmaður, var sýknaður af ákæru í Héraðsdómi Norðurlands eystra og Hæstarétti árið 2011. Í kærunni er einnig tekið fram að fréttin hafi valdið viðkomandi dagforeldri umtalsverðum fjárhagsskaða, ærumissi og atvinnumissi. Ritstjórinn hafi ekki reynt að hafa samband við dagforeldrið við vinnslu fréttarinnar. Auk þess hafi dagforeldrið gætt þriggja barna en þar af séu tvö börn dagforeldrisins. Kæran byggir á 3. og 5. grein siðareglna BÍ. Þar segir að blaðamaður skuli forðast allt sem valdið geti saklausu fólki óþarfa sársauka eða vanvirðu og að í frásögnum af dóms og refsimálum skuli blaðamenn virða þá meginreglu laga að hver maður sé talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð.Nánar er fjallað um málið á vef Akureyri vikublaðs.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Sjá meira