Framkvæmdum við Klettaskóla frestað Magnús Þ. Lúðvíksson skrifar 10. maí 2013 06:00 Klettaskóli, sem stendur við Suðurhlíð í Öskjuhlíðinni, varð til árið 2011 við sameiningu Safamýrar- og Öskjuhlíðarskóla.FréttablaðiÐ/Vilhelm
Tafir hafa orðið á framkvæmdum við fyrirhugaða viðbyggingu við Klettaskóla í Öskjuhlíð. Íbúar í nágrenni skólans hafa gert fjölmargar athugasemdir við bygginguna en til stóð að hefja framkvæmdir á þessu ári. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í febrúar í fyrra að byggð skyldi viðbygging við Klettaskóla. Stóð til að nýja byggingin yrði 3.400 fermetrar og hýsti íþróttaaðstöðu og sundlaug. Þá stóð einnig til að gera breytingar á eldra húsnæði skólans. Framkvæmdir áttu að hefjast á þessu ári en nú er ljóst að þeim verður frestað í það minnsta fram á næsta vor. „Það hafa verið haldnir tveir íbúafundir um málið. Á seinni fundinum í febrúar var afhentur undirskriftalisti frá íbúum þar sem framkvæmdunum var mótmælt,“ segir Rúnar Gunnarsson, deildarstjóri á mannvirkjaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Rúnar segir að í kjölfarið hafi starfsmenn borgarinnar fundað með fulltrúum íbúa til að reyna að ná sáttum um framkvæmdina. „Við höfum samþykkt að hverfa frá því að stækka lóðina og fjölga bílastæðum. Þá er hugmyndin nú að íþróttahúsið verði einum metra lægra en upphaflega stóð til og lengra frá lóðarmörkum. Loks hafa íbúar farið fram á að salur í viðbyggingunni verði lækkaður,“ segir Rúnar og bætir við: „En þetta samráðsferli stendur enn yfir og vonumst við eftir því að geta brátt kynnt niðurstöðurnar á íbúafundi.“ Klettaskóli varð til árið 2011 við sameiningu tveggja sérskóla; Safamýrar- og Öskjuhlíðarskóla. Skólinn er til húsa við Suðurhlíð, þar sem Öskjuhlíðarskóli var áður til húsa, í tæplega 3.000 fermetra byggingu. Fyrirhuguð viðbygging átti því að ríflega tvöfalda byggingarmagn. Erla Gunnarsdóttir, skólastjóri Klettaskóla, segist vera orðin langeyg eftir nýju byggingunni en sýnir því þó skilning að framkvæmdin þurfi að fara í gegnum sitt ferli. „Við hlökkum óskaplega mikið til þess að fá þessa viðbyggingu vegna þess að hún gjörbreytir aðstöðunni fyrir nemendur okkar. Við erum að keyra þá út og suður í sund og leikfimi og lendum alltaf í vandræðum með skólasetningu og -slit þar sem okkur skortir sal,“ segir Erla og bætir við: „Það er því ýmislegt í þessari byggingu sem við hlökkum mjög mikið til að fá. En það er bara þannig í þessu þjóðfélagi að það er reynt að afgreiða mál eftir ákveðnum leikreglum og ég held að það hafi verið gert í þessu máli.“
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira