Þór/KA stoppaði sigurgöngu Vals og hjálpaði Stjörnunni - myndir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. ágúst 2013 15:45 Mynd/Daníel
Norðanstúlkur úr Þór/KA gáfu liði Stjörnunnar tækifæri á því að komast enn nærri Íslandsmeistaratitli kvenna í fótbolta í kvöld þegar norðanliðið stöðvaði sigurgöngu Vals í markalausu jafntefli á Vodafone-vellinum í kvöld. Stjarnan getur því náð tólf stiga forskoti með sigri á HK/Víkingi seinna í kvöld. Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leiknum í kvöld og náði þessum skemmtilegu myndum hér fyrir ofan. Valskonur voru búnar að vinna sjö deildarleiki í röð og alla þrjá leiki sína síðan að Edda Garðarsdóttir og Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir fóru að leika með liðinu. Valsliðið fékk fjölda færa til að tryggja sér sigurinn í leiknum í dag en fóru illa með mörg frábær marktækifæri. Edda skoraði í fyrri hálfleik en var dæmd brotlega og því var markið dæmt af. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir fékk fín færi til að skora eins og fleiri leikmenn Valsliðsins en markið leit ekki dagsins ljós. Elín Metta Jensen, markhæsti leikmaður Valsliðsins, sofnar væntanlega seint í nótt, enda átti hún hiklaust að skora nokkur í þessum leik. Þetta var síðasti leikur liðs Þór/KA fyrir bikarúrslitaleikinn á móti Breiðabliki sem fer fram um næstu helgi. Mateja Zver gat stolið sigrinum í lokin þegar hún átti skot í slá.Mynd/Daníel
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Körfubolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Sjá meira