Stjórnarmyndunarviðræður oftast tekið um hálfan mánuð Hrund Þórsdóttir skrifar 11. maí 2013 19:58
Undanfarinn aldarfjórðung hafa stjórnarmyndunarviðræður oftast tekið í kringum hálfan mánuð. Dragist viðræður formanna Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins lengur en fram eftir næstu viku, má velta fyrir sér hvort þær verði komnar út fyrir það umboð sem forseti Íslands veitti. Stjórnarmyndunarviðræður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, og Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, hafa á morgun staðið yfir í viku. Í dag funduðu þeir fyrst í höfuðborginni og síðan utan bæjarmarkanna og stefnt er á að halda viðræðum áfram á morgun. Á síðustu áratugum hafa stjórnarmyndunarviðræður tekið í kringum hálfan mánuð, nema þegar um framhald á fyrra samstarfi hefur verið að ræða, eins og árið 1999, þegar viðræðum lauk á einum degi. Áður fyrr tóku viðræður hins vegar oft langan tíma, einkum vegna þess að stjórnarmyndun var mjög flókin. Frá árinu 1944 tóku viðræður að meðaltali 27 daga og lengstan tíma tóku þær árið 1947, þegar það tók 117 daga fyrir Alþýðuflokkinn, Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn að ná samkomulagi. Átta sinnum yfir tímabilið tókst að ljúka viðræðum á einum degi. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að undanfarinn aldarfjórðung hafi þeir sem staðið hafi í stjórnarmyndunarviðræðum, oftast vitað hvers konar stjórnir þeir hafi verið á leiðinni að mynda og því hafi viðræður oftast gengið hraðar fyrir sig í seinni tíð. Enn sé þó ekkert óeðlilegt við viðræður Sigmundar og Bjarna nú. „Einhvern tímann fram eftir næstu viku þá væri alveg eðlilegt að viðræðurnar héldu áfram á þeim nótum sem þær hafa verið. Svo gætu menn farið að velta fyrir sér ef þær tefðust lengi eftir það, hvort það væri þá komið út fyrir það umboð sem forsetinn veitti,“ segir Gunnar Helgi. Hann segir jafnframt að dragist viðræðurnar lengur en það, megi velta fyrir sér hvort einhverjar óvenjulegar breytingar standi fyrir dyrum. „því venjulega eru menn komnir með stjórnarsáttmála á tiltölulega stuttum tíma,“ segir Gunnar Helgi.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira