Brot gegn börnum hafa kallað á hömlulaus viðbrögð Þorgils Jónsson skrifar 6. febrúar 2013 06:00 Helgi Gunnlaugsson segir hömluleysi ríkja, en það að svara harmleik með öðrum harmleik geri málin enn verri. Myndin er sviðsett.
Lögregla verður vör við að fólk reyni að taka lögin í sínar hendur. Félagsfræðingur rekur ástandið aftur til samfélagsbreytinga frá því fyrir hrun. Nauðsynlegt sé þó að beisla reiðina og treysta á að kerfið virki. Almennir borgarar hafa í auknum mæli freistað þess að taka lögin í sínar hendur síðustu misseri, að mati lögreglu, og jafnvel beitt ofbeldi til að rétta sinn hlut eða annarra sem þeim finnst hafa verið brotið á. Þetta eigi þó aðeins við um kynferðisafbrotamál. Fræðimaður segir þróun til aukins hömluleysis í þessum málum mega rekja aftur til áranna fyrir hrun. „Við erum með tvö nýleg tilfelli sem tengjast kynferðisafbrotamálum, annars vegar á Skagaströnd og hins vegar á Eyrarbakka, en svo kom líka upp svipað mál í okkar umdæmi á Þórshöfn í fyrra. Þetta veldur okkur áhyggjum og að okkar mati er þetta ótækt. Þó svo að einstaklingar hafi talið á sér brotið eða telji að þeir hafi verið beittir misrétti er þetta ekki lausnin," segir Gunnar Jóhannsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Akureyri, í samtali við Fréttablaðið. Gunnar bætir því við að almenningur verði að átta sig á því að til séu réttar leiðir til úrlausnar, meðal annars í gegnum dómskerfið. Hefndaraðgerðir séu aldrei til bóta og geti haft víðtækar og slæmar afleiðingar auk þess sem sumir sem grípa til slíks koma til með að dauðsjá eftir öllu. „Við hvetjum fólk til að halda ró sinni og forðast það að taka gerræðislegar ákvarðanir sem verða til þess að maður gerir eitthvað sem erfitt er að taka aftur síðar." Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, rekur aukningu í þessum málum til tveggja meginþátta. Annars vegar er það fráhvarf frá þöggun um kynferðisafbrot og hins vegar aukið hömluleysi í viðbrögðum fólks, sem hann tengir breytingum og uppgjöri í samfélaginu sem reka má til aðdraganda hrunsins. „Þessi umræða um kynferðisbrot gegn börnum undanfarið hefur losað um eitthvað í þjóðarsálinni og viðbrögðin hafa oft verið hömlulaus. Þar er fólk að fara fram úr sér og gerir einungis illt verra með því að svara harmleik með öðrum harmleik og það er dapurlegt að horfa upp á." Helgi segir að í slíkum tilfellum sé nauðsynlegt að beisla reiðina og beina henni inn í eðlilegan farveg. „Ef við leyfum reiðinni að ná stjórninni getur það haft ófyrirséðar afleiðingar. Kerfið er kannski illa búið eins og er en þá verðum við, sem samfélag, að taka á því. Samfélaginu verður að vera ljóst að kerfið megni að sjá um þessi mál."
Mest lesið Vaktin: Þakka fólki fyrir að fara að tilmælum Innlent Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Innlent Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Innlent Þetta voru vinsælustu nöfnin á síðasta ári Innlent Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Innlent Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Innlent Aukafréttatími í sjónvarpi í hádeginu Innlent Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Innlent Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Innlent Fleiri fréttir Strætó hættir akstri í dag Ráðin framkvæmdastjóri Rauða krossins Aukafréttatími í sjónvarpi í hádeginu Vetrarþjónusta í gangi og fer á fullt um hádegi Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Þetta voru vinsælustu nöfnin á síðasta ári Innan við fimmtán prósent telja loftslagsbreytingar ekki staðreynd Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Þau skipa lista Samfylkingarinnar á Akranesi Vaktin: Vegum lokað og varað við ferðalögum á Suðurlandi Státum af klárasta barþjóni Evrópu Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Almannavarnir í beinni og ótti um að launafólk verðleggi sig út af markaðnum Aflýsa og seinka flugferðum Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Auka viðbúnað í Grindavík vegna veðurs „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Loka Sorpu vegna veðurs Áfram í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar í Túnunum Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Bíll í ljósum logum Fjölga plássum og breyta nafni eins leikskóla Þau skipa lista Miðflokksins í Reykjanesbæ Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Kolin hitna undir menningarhúsinu á Króknum Gert ráð fyrir að aðildarviðræður klárist á kjörtímabilinu Sjá meira