Lífið

Brunar í gegnum heilu og hálfu maraþonin á handaflinu einu saman

Arna Sigríður Albertsdóttir
Arna Sigríður Albertsdóttir Mynd/Úr einkasafni
Arna Sigríður Albertsdóttir er 23 ára gamall Ísfirðingur sem nú er búsett í Kópavogi.

Árið 2006 lamaðist Arna fyrir neðan brjóst í alvarlegu skíðaslysi í Noregi en hún lætur það svo sannarlega ekki aftra sér frá því að taka þátt í Meistaramánuðinum af fullum krafti.

Arna setti sér skýr markmið fyrir mánuðinn sem hún vinnur í með sjálfri sér, fjölskyldu og þjálfara. Á meðal markmiða hennar er til að mynda að snooza ekki, að sleppa öllu nammi og gosi og að bæta tímann sinn í maraþoni. Þegar við spurðum Örnu útí það hvernig markmiðin hefðu gengið í mánuðinum sagði hún okkur að þetta hefði nú allt saman verið með fínasta móti hingað til;  

„Það hefur gengið mjög vel hingað til. Ég hef ekkert nammi eða gos fengið mér, en það kom vissulega smá bakslag í þetta allt saman þegar ég þurfti að fara í endajaxlatöku í annarri viku mánaðarins. Það er hinsvegar búið og gert núna og ég held bara mínu striki.“

Áhugavert er að sjá hversu kraftmikil Arna er í líkamsræktinni og er hún ekki aðeins dugleg að stunda körfubolta og handbolta, heldur hjólar hún einnig af miklum móð á svokölluðu handahjóli.

Arna sagði það hafa tekið töluverðan tíma að finna hreyfingu sem hentaði henni enda hefur hún takmarkað styrk í baki og kvið. Hún byrjaði á því að stunda skíðin aftur árið 2009 á svokölluðu mono-skíði og er líka afskaplega glöð með að hafa fundið handhjólið sem hún þurfti að sérpanta frá Bandaríkjunum árið 2011.  

Það er einmitt á þessu hjóli sem að Arna brunar í gegnum heilu og hálfu maraþonin á handaflinu einu saman og fullyrðir hún að eitt sinn hafi hún mælst á yfir 50 kílómetra hraða á hjólinu, það fær þó að fylgja sögunni að það hafi mögulega verið niður brekku. Í mánuðinum hefur Arna verið dugleg við það að æfa hjólreiðarnar og stefnir, eins og áður sagði, á að bæta maraþontímann sinn sem nú stendur í 2:36:11.

 „Langtímamarkmiðið er að fara undir tvo tímana en ég efast um að ná því á næstu tveimur vikum. Fínt þætti mér að komast undir 2:30:00 fyrir mánaðarmót en það veltur svolítið mikið á því hvernig veðrið hérna á höfuðborgarsvæðinu verður, ef það kemur hálka eða snjór þá festist ég bara og spóla þannig að þá er lítið hægt að æfa.“



Arna er hin prýðilegasta fyrirmynd sem ætti óneitanlega að fá alla til þess hugsa sig tvisvar um þegar það á að slaka á í stað þess að rækta líkamann!  Betur má síðan fylgjast með meistaratöktum Örnu á heimasíðu sem hún heldur úti en Arna ætlar einnig að líta við í Meistaramánuði Stöðvar 2 á fimmtudaginn klukkan 19:20. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.