Sport

Tyson skilar eyra Holyfields í magnaðri auglýsingu

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Tyson beit af eyra Holyfields í sögufrægri viðureign árið 1997.
Tyson beit af eyra Holyfields í sögufrægri viðureign árið 1997.
Hnefaleikakappinn Mike Tyson skilar stykkinu sem hann beit af eyra Evanders Holyfield í nýrri auglýsingu frá bandarísku íþróttavörukeðjunni Foot Locker.

Atriðið er tilvísun í bardaga þeirra Tysons og Holyfields árið 1997, þar sem sá fyrrnefndi var dæmdur úr keppni fyrir verknaðinn. Tyson fór í árslangt keppnisbann og bað Holyfield afsökunar árið 1999.

Í auglýsingunni má einnig sjá körfuknattleiksmanninn Dennis Rodman kaupa sér ferð aðra leið til Norður-Kóreu, en hann hefur vakið furðu heimsbyggðarinnar fyrir vinskap sinn við Kim Jong-Un, leiðtoga landsins.

Auglýsinguna má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×