Sport

Norðmaður með níu fingur á heimsmeistaratitlinum í skák

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magnus Carlsen
Magnus Carlsen nordicphotos/getty
Áttundi viðureign Norðmannsins Magnus Carlsen og Indverjans Vishy Anand lauk með jafntefli í dag en staðan í einvíginu um heimsmeistaratitilinn í skák er 5-3 fyrir Carlsen.

Aldrei áður hefur Norðmaður orðið heimsmeistari í skák en hann ku vera kominn í vænlega stöðu en sérfróðir menn í skákheiminum telja útilokað fyrir Anand að koma til baka úr þessu.

Alls fara tólf viðureignir fram en Carlsen hefur nú þegar náð í tvö sigra og sex viðureignir hafa farið jafnt. Hálft stig er gefið fyrir jafntefli og því hefur Norðmaðurinn fimm stig.

Næsta viðureign fer fram á fimmtudag síðan mætast þeir á ný daginn eftir í Berlín þar sem mótið fer fram.

Hér má fylgjast grant með gangi mála frá mótinu en norska vefsíðan VG.NO gerir þessu móti frábær skil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×