Lífið

Depp hlakkar til að eldast

Leikarinn Johnny Depp var gestur í sjónvarpsþætti Jimmy Kimmel fyrir stuttu. Þar kynnti hann nýjustu kvikmynd sína, The Lone Ranger.

Depp fagnaði fimmtugsafmæli sínu þann 9. júní  síðastliðinn og sagðist hlakka til þess að geta hagað sér á óábyrgan hátt að nýju.

„Þegar maður verður fimmtugur þá getur maður hlakkað til þess að haga sér á óábyrgan hátt að nýju. Þegar maður eldist má maður sitja í stól allan liðlangan daginn og klæðst því sem maður vill,“ sagði leikarinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.