Innlent

Fullir fá ekki að taka stúdentspróf

Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar
6. bekkur A við að dimmitera ásamt latínukennara sínum, nú í morgun.
6. bekkur A við að dimmitera ásamt latínukennara sínum, nú í morgun.
"Það er fjör. Við vorum að koma úr morgunpartíi og erum nú á leið í skólann að kveðja kennarana. Angurvær stemmning en fögnuður líka," sagði Þórður Ingi Jónsson í samtali við Vísi í bítið.

Foreldrar sáu margir hverjir á eftir afkvæmunum á leið í partí fyrir allar aldir en MR-ingar dimmitera í dag. Ef af líkum lætur verður einhver tolleraður í dag og Gaudeamus Igitur mun heyrast um alla Reykjavíkurborg, stúdentaslagarinn kyrjaður af misdrukknum ungmennum.

Skólayfirvöld hafa komið þeim ábendingum til nemenda sinna að verði einhver áberandi drukkinn í tengslum við dimmisjónina, þá fái sá ekki að taka stúdentspróf. "Stemmir," segir Þórður Ingi. Hann vill þó ekki meina að þetta verði til þess að stúdentsefnin verði bláedrú:

"Þetta gildir bara á meðan þú ert á skólalóðinni. Menn passa sig bara á sterku drykkjunum í morgunpartíinu og spreyja svo mintu í kjaftinn." Flestir eru að drekka en Þórður Ingi gerir ekki ráð fyrir því að menn verði gripnir ..." nema menn séu á gólfinu að syngja sjóhatt," eins og hann orðar það.

Lengi mun hafa verið haft á orði að viðurlög við því að vera áberandi drukkinn á dimmisjón yrðu að fá ekki að taka stúdentspróf en nú á að fylgja því eftir. Það kom hafa komið með nýjum rektor, Lindu Rós Mikaelsdóttur, sem tók við af Yngva Péturssyni rektor, en hann er í námsleyfi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×