Gylfi tryggði Tottenham jafntefli annan leikinn í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2013 12:30 Mynd/Nordic Photos/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Tottenham jafntefli í öðrum leiknum í röð þegar hann skoraði þremur mínútum fyrir leikslok í 2-2 jafntefli á heimavelli á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Gylfi skoraði markið á 87. mínútu þegar hann fylgdi á eftir skoti Emmanuel Adebayor sem fór í stöngina og fyrir markið. Gylfi var á réttum stað í markteignum og skoraði örugglega. Gylfi tryggði Tottenham 2-2 jafntefli á móti svissneska liðinu Basel í Evrópudeildinni á fimmtudagskvöldið. Hann hefur nú skorað sex mörk á tímabilinu þar af tvö þeirra í deildinni. Tottenham fékk algjöra draumabyrjun í leiknum. Emmanuel Adebayor kom nefnilega Tottenham í 1-0 eftir 34 sekúndur en Everton kom til baka og komst yfir áður en Gylfi tryggði Tottenham eitt stig. Emmanuel Adebayor skoraði í fyrstu sókn leiksins þegar hann afgreiddi fyrirgjöf Jan Vertonghen frá vinstri kanti. Phil Jagielka jafnaði metin á 15. mínútu þegar hann skallaði inn hornspyrnu Leighton Baines. Kevin Mirallas kom Everton yfir á 53. mínútu eftir laglega einleik í gegnum vörn Tottenham. Frábært mark sem leit lengi út fyrir að ætlaði að verða sigurmarkið í leiknum eða þar til að Gylfi reddaði sínum mönnum í lokin.
Enski boltinn Mest lesið Guðmundur Oddsson látinn Golf Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ Íslenski boltinn Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira