Lífið

Russell Crowe nær sér í eina unga

Stórleikarinn og Íslandsvinurinn Russell Crowe virðist vera búinn að finna ástina í örmum leik- og söngkonunnar Samönthu Barks en þau léku einmitt saman í kvikmyndinni Vesalingunum.

Þau fóru á æfingu saman um helgina og fengu sér síðan hádegismat í Los Angeles.

Gaman saman.
Samantha er 22ja ára en Russell 48 ára en kunnugir segja að hér sé um nýtt par að ræða þó þau haldi því fram að þau séu bara góðir vinir.

Á Óskarnum.
Russell skildi við eiginkonu sína til níu ára, Danielle Spencer, í október í fyrra en þau eiga saman tvö börn.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.