Lífið

Gítarleikari Sabbath í Eurovision

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Tony Iommi, gítarleikari bresku þungarokkshljómveitarinnar Black Sabbath, er höfundur framlags Armeníu til Eurovision-keppninnar sem fram fer í Malmö í maí.

Þetta kann að þykja undarlegt, en Iommi er landinu kunnugur eftir að hafa tekið þátt í fjársöfnun vegna uppbyggingar í borginni Spitak, en hún fór illa úr jarðskjálfta árið 1988.

Iommi segist þó hafa verið hikandi í fyrstu. „Það hljómaði undarlega fyrir mig að taka þátt í Eurovision. En ég hugsaði með mér að ég ætti rokkballöðu á lager sem væri tilvalin í keppnina," segir gítarleikarinn, en hann mun þó halda sig fjarri sviðinu í Malmö og taka einungis þátt sem höfundur.

Undanfarin ár hefur það færst í aukana að heimsþekktir tónlistarmenn taki þátt í Eurovision-keppninni. Söngvarinn Engelbert Humperdinck tók til dæmis þátt fyrir hönd Bretlands í fyrra, og 80's-drottningin Bonnie Tyler í ár.


Tengdar fréttir

Sjáðu framlag Bonnie Tyler í Eurovision

Bonnie Tyler hefur verið valin til þess að flytja framlag Breta í Eurovision í vor. Söngkonan hefur verið ein sú vinsælasta í heimi allt frá áttunda áratug síðustu aldar. Vonir standa til að henni muni ganga betur en Engelbert Humperdinck í fyrra, en hann var í næstsíðasta sæti. Eitt þekktasta lag Bonnie Tyler er líklegast Total Eclipse of a Heart






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.