Lífið

Ég er einhleypur maður

Tónlistarmógúllinn Simon Cowell hefur staðfest að hann sé hættur með glamúrpíunni Carmen Electra. Það kemur fáum á óvart enda hafa þau ekki verið mynduð saman svo vikum skiptir.

"Ég er nú einhleypur maður. Við eyddum tíma saman og hún er mjög skemmtileg. En mig langar að finna mér kærustu," segir þessi 53ja ára X Factor-dómari.

Simon og Carmen eru hætt saman.
Simon og Carmen sáust saman á nokkrum stefnumótum á seinni hluta síðasta árs og fyrir tveimur mánuðum sagðist Simon vera skotinn í stelpunni.

Simon hefur átt margar kærustur og var með meiköpp artistanum Mezhgan Hussainy áður en hann byrjaði með Carmen. Mezhgan og hann voru trúlofuð en hættu saman á síðasta ári.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.