Innlent

Ógnaði manni með hníf

Karlmaður á þrítugsaldri ógnaði öðrum manni með hnífi í miðborginni um fimmleytið í morgun. Hann var handtekinn skömmu síðar á Hverfisgötu en að sögn lögreglu var maðurinn í annarlegu ástandi og gaf þá skýringu að honum hefði sinnast við þann sem hann ógnaði.

Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögregunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Önnur tilkynningin kom um miðnætti frá Fenjahverfinu í austurborginni en þar var talið að hópslagsmál væru í uppsiglingu. Fólkið róaðist þegar lögregla kom á vettvang og var enginn sár á eftir. Hin tilkynningin kom á öðrum tímanum í nótt frá miðborginni en þar meiddist enginn.

Þá voru þrír ökumenn teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu þessa nóttina fyrir að aka undir áhrifum áfengis, þar af ók ölvaður karlmaður á fertugsaldri á vegrið á Nýbýlavegi. Eftir óhappið ók hann af vettvangi og lagði bifreið sinni í stæði skammt frá þar sem hann var handtekinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×