Segja óeðlilegt að formenn sitji einir að samningaborðinu Hrund Þórsdóttir skrifar 12. maí 2013 12:06 Formennirnir á góðri stundu.
Þingmaður Samfylkingar og kapteinn Pírata eru sammála um að óeðlilegt sé að formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, sitji enn einir að samningaborðinu varðandi stjórnarmyndun. Auka þurfi gagnsæi í stjórnarmyndunarviðræðum. Þeir hafa nú fundað í eina viku. Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir kúnstugt að stjórnarmyndunarviðræðurnar virðist vera tveggja manna tal. Ljóst sé að það sé ekki tveggja manna verk að mynda ríkisstjórn. Hún segir eðlilegt að menn tali saman í næði fyrst. „En að menn tali saman í heila viku án þess að þingmenn komi þar nokkuð að, það finnst mér mjög sérkennilegt. Og ef ég væri í öðrum hvorum af þessum þingflokkum, þá væri ég orðin frekar æst,“ segir Valgerður og bætir við að gagnasöfnun Sigmundar og Bjarna vegna viðræðnanna hljóma undarlega, enda hafi báðir flokkarnir gefið stór loforð fyrir kosningarnar. „Og þá veltir maður fyrir sér hvort þeir voru að lofa upp í hendurnar á sér, voru þeir ekki með gögn um hverju þeir voru að lofa,“ segir Valgerður. Valgerður segir jafnframt að breyta þurfi kerfinu til að ýta undir aðkomu þingmanna. Hún vísar í tillögur stjórnlagaráðs sem fela meðal annars í sér að þingið myndi kjósa forsætisráðherra, og segir að ef slíkt kerfi væri við lýði yrði aðkoma fleiri að stjórnarmyndunarferlinu væntanlega tryggð. Hún segir að menn breyti seint um hegðun að eigin frumkvæði, breytt regluverk þurfi til. „Það er bara almennt þannig að menn afsala sér ekki völdum sjálfir nema kerfið geri ráð fyrir því.“ Birgitta Jónsdóttir, þingmaður og kapteinn pírata, tekur í svipaðan streng og Valgerður. „Mér finnst pínulítið skringilegt að þetta séu aðallega bara tveir menn en finnst samt mikilvægt að fólk hafi í huga að þetta getur tekið langan tíma og ég vona bara að það þýði að þeir séu að vanda sig,“ segir Birgitta. Hún segir gamaldags aðferðafræði að tveir foringjar taki ákvarðanir á bak við luktar dyr og kallar eftir auknu gagnsæi. „Þetta skiptir afkomu gríðarlega margra máli og ekki bara einstaklinga heldur líka fyrirtækja og stofnana þannig að það er mjög mikilvægt að þó að fólk vilji vanda sig að það haldi fólki betur upplýstu um hvað er í gangi,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður og kapteinn Pírata að lokum.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira