Lífið

Heiðursverðlaunahafi lýsir yfir hættuástandi

Ellý Ármanns skrifar
Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá Kristínu Jóhannesdóttur leikstjóra taka við heiðursverðlaunum akademíunnar á Edduverðlaunahátíðinni sem fram fór í Hörpu um helgina. Kristín gagnrýndi harðlega rýrt hlutskipti kvenna í íslenskri kvikmyndagerð á síðustu áratugum.



„Mig óraði ekki fyrir því þá að þrjátíu árum síðar væri ekki hægt að nýta lágmarkskvóta í flokki kvenhlutverka til Edduverðlauna. Það er heldur engin kona á meðal leikstjóra leikinna mynda í fullri lengd. Örfá hlutverk í myndum karla eiga sem sagt að skapa okkur kvenímyndir í þessum öfluga miðli. Hvað á þetta að þýða? Þetta er ekki aðeins ójöfnuður og óréttlæti heldur hættuástand sem hamlar eðlilegri framþróun greinarinnar og það sem meira er samfélagsins alls. Pælið í því. Þetta er þjóðfélagsmein. Þjóðfélag verður aldrei heilt með karlagildi ein í öndvegi," sagði Kristín meðal annars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.