Innlent

Unglingar í Reykjanesbæ reykja og drekka síður

Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbær
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbær
Unglingar í Reykjanesbæ reykja og drekka síður en unglingar á landinu. Þetta eru nýjar niðurstöður Rannsóknar og greiningar ehf. fyrir árið 2012, þar sem meðal annars samanburður fæst á milli sveitarfélaga og landssvæða.

Í tilkynningu frá Reykjanesbæ segir að samkvæmt könnuninni hafi áfengisneysla og reykingar í 10. bekk árvisst minnkað á landinu öllu undanfarin 10 ár og unglingar í Reykjanesbæ séu með lægstu tíðni reykinga.

„Þetta eru mjög ánægjulegar niðurstöður fyrir okkur. Við sem samfélag höfum lagt mikla áherslu á forvarnir barna og unglinga, skóli og foreldrar reynast vera mjög vakandi og styðjandi við unga fólkið - og þegar þetta fer saman er von á góðum árangri,“ sagði Árni Sigfússon á íbúafund í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×