Aðrir flokkar gætu verið að tala saman án þess að neinn viti af því Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 4. maí 2013 12:14
Búist er við að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins haldi áfram að ræða við hugsanlega samstarfsaðila í dag engar formlegar stjórnarmyndunarviðræður eru þó hafnar. Stjórnmálafræðingur telur ekkert því til fyrirstöðu að aðrir flokkar ræði hugsanlega stjórnarmyndun. Síðan að Sigmundur fékk umboð til stjórnarmyndunar frá Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á þriðjudaginn hefur hann hitt formenn allra flokka. Suma oftar en aðra. Hann hefur þó lítið vilja gefa upp um það hvað komið hafi út úr fundunum en í samtali við vefmiðilinn Eyjuna í gærkvöldi að hann vænti þess að formlegar stjórnarmyndunarviðræður geti hafist um helgina. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, segir erfitt að lesa í stöðuna en ljóst sé að Sigmundur ætlar að vanda sig við stjórnarmyndun. Hann hafi svigrúm frá forsetanum til að taka tíma í stjórnarmyndun „Ég sé ekki annað en það fari nú senn að hilla undir það að það fari nú einhverjar formlegar viðræður í gang en hverjir svona komi til með að standa að þeim, það er nú ekki alveg auðséð á þessu augnabliki," segir Grétar Þór. Hann segir að á meðan að engar formlegar stjórnarmyndunarviðræður séu hafnar sé hugsanlegt að aðrir flokkar fari að ræða saman um hugsanlega stjórnarmyndun. „Það er ekkert sem kemur í sjálfu sér veg fyrir það að aðrir geti talað saman, þó að það sé óformlegt og án einhvers formlegs stjórnarmyndunarumboðs þá getur það auðvitað gerst og við höfum auðvitað dæmi um slíkt í sögunni,“ segir Grétar Þór. „Það getur alveg átt sér stað að aðrir flokkar séu að tala saman án þess að neinn viti af því og nái þeir síðan saman um eitthvað og sýni fram á meirihluta þá náttúrulega hljóta þeir á endanum að láta forsetann vita af því.“
Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Erlent Fleiri fréttir Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Sjá meira