Veittum börnunum athygli 22. mars 2013 10:45 Njóttu helgarinnar með barninu.
Fátt er jafn yndislegt og að njóta þess að vera úti í fallegri náttúru. Náttúran er fyrirtaks leiksvæði fyrir fólk á öllum aldri, ekki síst börn en þau eru meistarar í að finna upp á leikjum. Runnar og kjarr eru spennandi rannóknarefni fyrir börn; plöntur, vatn, sandur, steinar og mold breytast í leikföng og byggingarefni í höndum barna. Náttúran er síbreytileg og örvar jafnt skilningarvit sem hreyfiþroska barna ásamt því að næra hug og hjarta. Að takast á við brekkur, grjót og aðrar hindrarnir virkjar einnig sköpunarmátt sem nýtist þeim í leik og starfi til framtíðar. Síðan fá börn sem eyða meiri tíma úti síður pestir og eru almennt hraustari.Rannsóknir sýna að lífstíll mótast í æsku. Börn sem hreyfa sig reglulega með fjölskyldunni eru líklegri til að tileinka sér heilbrigðan lífstíl síðar á ævinni. Það sama á við um kyrrsetu; ef börn venjast kyrrsetu, eins og að horfa mikið á sjónvarp eða sitja fyrir framan tölvu, þá er líklegra að þau hreyfi sig lítið þegar fram líða stundir. Nú eru að koma fram æ fleiri rannsóknir sem sýna að hreyfing er ein besta forvörn gegn helstu sjúkdómum sem herja á mannkynið en það eru hjarta- og æðasjúkdómar auk krabbameina. Þess vegna er svo mikilvægt að við sjáum til þess að börnin fái næga hreyfingu daglega og leggjum grunn að heilbrigðum lífsstíl fyrir lífstíð. Við eigum margar útivistarperlur á höfuðborgarsvæðinu. Útivistarsvæðið við Reynisvatn í Grafarholti er sannkölluð paradís. Börnin njóta sín í fallegri náttúru þar sem ríkir kyrrð og ró. Hægt er að ganga í kringum vatnið og kasta í það allan ársins hring, sjá www.reynisvatn.is. Á staðnum er einnig lítill en ævintýralegur skógur þar sem hugmyndaflugið fær að njóta sín; í skóginum er Sæmundarsel sem vekur alltaf lukku hjá börnum. Til að komast að Reynisvatni er beygt af Vesturlandsvegi inn á Reynisvatnsveg og síðan til hægri á Biskupsgötu en svæðið er þar á vinstri hönd. Björnslundur í Norðlingaholti er barnvænn og fallegur lítill skógur. Gott skjól og fallegir stígar til göngu eru í lundinum. Einnig er þarna "hús" úr viði og striga sem börnin geta prílað upp í og leikið sér. Til að komast þangað er Breiðholtsbraut ekin og beygt af henni inn í Norðlingaholt. Síðan er beygt til hægri af Þingtorgi á Elliðabraut sem ekin er þar til lundurinn sést á hægri hönd. Veittu börnunum þínum athygli. Gefðu þér tíma til að vera með þeim, taktu eftir þeim, elskaðu þau og sýndu þeim ástúð og hlýju. Á þeim byggir framtíðin. Eftir höfunda bókarinnar "Útivist og afþreying fyrir börn" og heimasíðunnar www.fyrirborn.is , Lára Guðrún Sigurðardóttir læknir og Sigríður Arna. Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur
Mest lesið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Lífið Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Lífið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Gosling verður Skrattakollur Bíó og sjónvarp Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Fleiri fréttir Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Sjá meira