Sport

Ásgeir hafnaði í 32. sæti í undankeppninni | Nokkuð frá sínu besta

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Valli
Ásgeir Sigurgeirsson hafnaði í 32. sæti af 38 keppendum í undankeppni með frjálsri skammbyssu af 50 metra færi í morgun.

Ásgeir fékk 544 stig en Young Rae Chio frá Suður-Kóreu hafnaði í efsta sæti með 569 stig. Síðasti maður sem tryggði sig inn í átta manna úrslit fékk 559 stig.

Íslandsmet Ásgeirs í greininni er 565 stig svo hann var nokkuð frá sínu besta í dag. Hann fékk hæst 93 stig í einni grúppu en lægst 86 stig.

Ásgeir hefur nú lokið keppni á Ólympíuleikunum en hann keppti einnig í loftskammbyssu af 10 metra færi. Þar hafnaði hann í 14. sæti í undankeppninni og var nálægt því að komast áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×