Berjast fyrir bættri velferð og meðferð á húsdýrum 3. október 2012 09:26 Árni Stefán Árnason, dýraréttarlögfræðingur og sendiherra Íslands á alþjóðlega degi dýranna, hvetur alla til að hugsa til dýranna á morgun. Fréttablaðið/Stefán „
Þetta eru málefni sem allir eiga að láta sig varða,“ segir Árni Stefán Árnason, dýraréttarlögfræðingur og svokallaður sendiherra Íslands á alþjóðlega degi dýranna sem verður haldinn hátíðlegur á morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem alþjóðlega degi dýranna er fagnað hér á landi. 4. október er hátíðardagur verndardýrlings dýranna, heilags Frans frá Assisi, en dagurinn var í fyrsta sinn skilgreindur á ráðstefnu vistfræðinga í Flórens á Ítalíu árið 1931. Upphaflegt markmið dagsins var að vekja athygli á dýrategundum í útrýmingarhættu en Árni segir að í dag snúist dagurinn meira um að berjast fyrir bættri velferð og meðferð dýranna. „Þetta er í fyrsta sinn sem þessi dagur er haldinn hátíðlegur hér á landi undir þessum formerkjum. Dagurinn á ekki síst að beina sjónum að því hvernig við förum með dýr í dag og hvernig við getum bætt búfjárhald,“ segir Árni og á þá við til dæmis í matvæla- og fataframleiðslu. Árni vill vekja athygli Alþingis á hvernig dýravelferð er háttað hér á landi en hann fullyrðir að mörgu sé ábótavant í þeim efnum. Hann gagnrýnir þá helst verksmiðjubúskapinn og tekur sem dæmi eggjaframleiðslu þar sem hænur eru lokaðar inni margar saman í litlum rýmum til að verpa. „Evrópusambandið hefur til dæmis nýlega bannað þessa meðferð á hænum í eggjaframleiðslu en hér á landi breytist þetta ekki. Nýlegar rannsóknir sýna að dýrin standa miklu nær okkur í erfðafræðilegum skilningi en talið hefur verið. Það þýðir að dýr eru fullfær um að upplifa vellíðan og þjáningu eins og við.“ Í tilefni af degi dýranna verður hátíðardagskrá í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og hefst hún klukkan 20. Árni hvetur sem flesta til að mæta enda verður þetta létt og stutt kynning á alþjóðlega degi dýranna sem og tónlistaratriði og upplestur. Árni segir morgundaginn setja nýjan tón fyrir dýravernd á Íslandi en nánari upplýsingar má finn á vefsíðunni Dagurdyranna.is eða á Worldanimalday.co.uk.
Mest lesið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Sjá meira