Sport

Vel tekið á móti Jón Margeiri og íslenska Ólympíuhópnum í kvöld - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Margeir Sverrisson var hrókur alls fagnaðar í kvöld.
Jón Margeir Sverrisson var hrókur alls fagnaðar í kvöld. Mynd/Stefán
Það var vel tekið á móti íslenska Ólympíuhópnum þegar hann kom til Íslands í kvöld eftir frábæra frammistöðu á Ólympíumóti fatlaðra. Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir, Helgi Sveinsson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir settu öll Íslandsmet á mótinu en fremstur í flokki fór gull-maðurinn Jón Margeir Sverrisson sem vann gull í 200 metra skriðsundi á nýju heimsmeti.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, afhenti Íþróttasambandi fatlaðra 4 milljónir króna í styrk vegna frammistöðu íslenska hópsins í London og Jón Margeir sjálfur fékk 500 þúsund króna styrk frá Kópavogsbæ.

Jón Margeir var að sjálfsögðu stjarnan í hópnum eins og hann hefur verið síðan að Ólympíugullið vannst fyrir rúmri viku. Allir vildu fá að óska honum til hamingju með árangurinn og flestir báðu líka um mynd af sér með þessum frábæra íþróttamanni.

Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á móttökunni í kvöld og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×