Tónlist

Sigtaði út á Ægissíðu

Freyr Bjarnason skrifar
ný plata Björk Guðmundsdóttir hefur sent frá sér plötuna bastards sem hefur að geyma endurhljóðblönduð lög.
mynd/Warren Du Preez & Nick Thornton Jones Wellhart/One Little Indian
ný plata Björk Guðmundsdóttir hefur sent frá sér plötuna bastards sem hefur að geyma endurhljóðblönduð lög. mynd/Warren Du Preez & Nick Thornton Jones Wellhart/One Little Indian
Björk Guðmundsdóttir hefur sent frá sér plötuna Bastards sem hefur að geyma endurhljóðblönduð lög af Biophiliu sem kom út í fyrra. Meðal þeirra sem eiga lög á plötunni eru Sýrlendingurinn Omar Souleyman, These New Puritans, Hudson Mohawke, Current Value, 16-bit, og Matthew Herbert. Þeir þrír síðastnefndu tóku einnig þátt í gerð Biophiliu.

„Þegar ég gerði fyrstu remix-plötuna mína var ég að hanga í búðum í London sem voru bara með plötur fyrir plötusnúða. Svo þegar ég fór í heimsókn til vina minna vissu þeir kannski ekkert af þessari tónlist. Þannig að ég gaf út remixplötu, The Best Mixes from the Album Debut for All the People Who Don't Buy White Labels, sem var kannski meira fyrir fólk sem fer í venjulegar geisladiskabúðir," segir Björk. „Það er svipað með þessa plötu. Öll þessi mix eru þegar komin út, þú getur halað þau niður af netinu, en hún er fyrir fólk sem er kannski ekki mikið að gera það. Ég setti saman „playlista", fór að hjóla á Ægissíðunni, hlustaði á þetta nokkrum sinnum og sigtaði úr 40 mixum niður í tólf."

Tónlistarverkefnið Biophilia leit dagsins ljós fyrir rúmu ári. Þar bjó Björk til tíu mismunandi tölvuprógrömm fyrir tíu mismunandi lög, byggð á tíu mismunandi náttúruöflum. Þau voru gefin út sem „öpp" fyrir iPhone og iPad.

Verkefnið teygði sig út til skóla, bæði í Reykjavík, New York, Manchester og Buenos Aires, þar sem Björk dvaldi í mánuð í senn, hélt tónleika og hafði yfirumsjón með verkefninu. Aðspurð segist hún mjög ánægð með hvernig til hefur tekist. „Þetta var kannski hugrakkasta ævintýrið sem ég hafði farið út í, að búa til tíu „öpp" en þetta var dálítið eftir þeirri hugmynd sem ég hef átt frá því ég var krakki, að stofna tónlistarskóla. Það sem hefur komið kannski mest á óvart er kennsluefnið. Það er komið í námsskrá hjá miðskóla í Reykjavík næstu þrjú árin og svo hefur New York tekið þessu opnum örmum. Í raun snýst Biophilia um að taka tónlistarkennslu og færa hana úr bóklegu formi yfir í verklegt," greinir Björk frá og bætir við að til standi að búa til vefsíðu þar sem allt námsefnið frá borgunum fjórum verður fáanlegt ókeypis.

Á næsta ári stendur til að halda áfram með Biophilia-verkefnið í París, San Francisco og Tókýó. Á einum mánuði verða ókeypis „app"-námskeið fyrir krakka í sama húsnæði og tónleikarnir verða haldnir. „Við fáum borgirnar til að borga undir krakkana en við gefum okkar vinnu. Okkar stefna er að koma út úr þessu á núlli."

Nú styttist óðfluga í jólin. Ætlar Björk að vera á Íslandi um hátíðirnar? „Ég hef eytt öllum jólunum á Íslandi, nema einum eða tveimur og mér fannst þau alveg hrikaleg. Ég hef alltaf verið helminginn af árinu á Íslandi og læt þá lítið fyrir mér fara. Síðustu fimm árin, frá ágúst til janúar, hef ég verið hérna því dóttir mín [Ísadóra] er í skóla hérna. Svo er hún í skóla í Brooklyn frá janúar til júní. Við ákváðum að skipta þessu á milli landanna því við gátum ekki ákveðið okkur foreldrarnir. Ég gat ekki hugsað mér að vera í New York allt árið og hann [listamaðurinn Matthew Barney] ekki hér, þannig að við hittumst í miðjunni."


Tengdar fréttir

Björk fór til sama skurðlæknis og Adele

Þurfti að þegja í þrjár vikur og gekk um Reykjavík með spjald um hálsinn til að skrifa á. "Þetta er eiginlega rokkstjarna raddbandaskurðlækna og það gekk rosalega vel," segir Björk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×