Lífið

FIFA plötusnúður til Íslands

TRS skrifar
Adrian Lux hefur útlitið með sér en hann vann sem fyrirsæta áður en hann snéri sér að tónlistinni
Adrian Lux hefur útlitið með sér en hann vann sem fyrirsæta áður en hann snéri sér að tónlistinni
„Hann er alvöru hönk og frábær tónlistamaður í þokkabót," segir umboðsmaðurinn Óli Geir hjá Agent.is um Adrian Lux sem er væntanlegur til landsins í lok mánaðarins.

Adrian er vel þekktur plötusnúður og á til að mynda lagið Can't sleep sem var notað í tölvuleikinn FIFA 2012. „Þessi gaur er bara algjör snillingur, það er ekkert flóknara en það. Hann er mikils virtur í DJ-heiminum og allir helstu plötusnúðarnir í dag vilja ólmir vinna með honum," segir Óli Geir og nefnir sem dæmi Avicii, Sander van Doorn og Axwell sem er meðlimur í Swedish House Mafia. Adrian er einnig vinsæll hérlendis en fjögur lög með honum eru í spilun á íslenskum útvarpsstöðvum þessa dagana. Hann er sænskur og vann fyrir sér sem fyrirsæta áður en hann snéri yfir í tónlistina fyrir nokkrum árum. „Það er ekki algengt að þessir ungu plötusnúðar gefi út plötur, en hann gerði það og fékk frábær viðbrögð. Það er bara til vitnis um það hversu góður hann raunverulega er," segir Óli Geir en Adrian gaf út sína fyrstu plötu í vor.

Adrian mun spila á Halloween partýi Agent.is á Þýska barnum þann 27.október næstkomandi og mun svala þorsta dansóðra aðdáenda sinna í tvo tíma. „Þetta verður stærsta Halloween partý ársins. Við ætlum að umbreyta staðnum og setja hann allan í búning, þetta er miklu skemmtilegra þannig," segir Óli Geir sprækur.



Hér má kynna sér allt um viðburðinn á Facebook.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.